140 þúsund í sekt fyrir hraðakstur
Lögreglan á Suðurnesjum hefur á síðustu dögum hafti afskipti af allmörgum ökumönnum sem ekið hafa yfir leyfilegum hámarkshraða í umdæminu. Flest brotin áttu sér stað á Reykjanesbraut. Sá sem hraðast ók reyndist vera piltur um tvítugt og mældist bifreið hans á 154 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. Hann þarf að borga um 140 þúsund krónur í sekt og á yfir höfði sér ökuleyfissviptingu.
Aðrir brotlegir ökumenn mældust frá 116 kílómetra hraða og allt upp í 143 km. á klukkustund. Þeir eiga einnig yfir höfði sér sekargreiðslur upp á tugi þúsunda og sumir þeirra ökuleyfissviptingu að auki. Auk þessara ofangreindu gerðust þrír ökumenn til viðbótar brotlegir. Einn þeirra var ekki með ökuskírteini meðferðis, annar var með útrunnið ökuskírteini og hinn þriðji, karlmaður nær þrítugu, hafði aldrei hafa öðlast ökuréttindi.