Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi
Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi

Fréttir

130 tonna skip á ferð um Reykjanesbæ
Föstudagur 18. september 2026 kl. 10:46

130 tonna skip á ferð um Reykjanesbæ

Gamalt fiskiskip, Maron GK, hefur fengið nýtt hlutverk. Eftir að hafa legið við bryggju í Njarðvík og síðar staðið uppi í slippnum í Njarðvík um langan tíma verður Maron GK nú nýttur til æfinga hjá Brunavörnum Suðurnesja.

Í morgun var komið að því að flytja skipið frá Skipasmíðastöðinni í Njarðvík og á æfingasvæði slökkviliðs Brunavarna Suðurnesja við Hafnaveg. Myndskeið af flutningnum má sjá neðst í fréttinni.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Flutningurinn hefur verið undirbúinn í heilt ár en hann gekk hins vegar alveg eins og í sögu. Skipið er um 130 tonna farmur sem var fluttur á risastórum vagni með á annað hundrað hjól en átta hjól eru á hverjum öxli.

Nú er verið að undirbúa það að hífa skipið af vagninum við æfingarsvæðið sem er þar sem sorpeyðingarstöðin stóð áður við Hafnaveg.

Meðfylgjandi myndir voru teknar við flutninginn í morgun.

VF/hilmarbragi

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100