Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

130 þátttakendur á starfsdegi Suðurnesjavaktarinnar
Mánudagur 31. október 2011 kl. 10:24

130 þátttakendur á starfsdegi Suðurnesjavaktarinnar



Starfsdagur Suðurnesjavaktarinnar fór fram sl. fimmtudag tókst mjög vel en það mættu tæplega 130 manns í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju. Markmiðið með starfsdeginum var að kynna öll úrræði og athafnir sem eru í boði á Suðurnesjum á sviði velferðarþjónustu en um langt bil hefur verið talin þörf á markvissri kynningu fyrir þá sem starfa að ráðgjöf og þjónustu við einstaklinga á svæðinu.

Þarna voru komnir saman aðilar sem standa að baki fulltrúum í Suðurnesjavaktinni ásamt öðrum sem starfa að velferðarmálum á svæðinu. Þarna voru meðal annars fulltrúar frá öllum félagþjónustum sveitarfélaganna á svæðinu, Vinnumálastofnun, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, menntastofnunum, kirkjunni, fræðsluskrifstofum og fleirum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ingibjörg Broddadóttir frá velferðarráðuneytinu og formaður Suðurnesjavaktarinnar flutti ávarp í upphafi dags. Eftir það hélt  Lovísa Lilliendahl, verkefnisstjóri Suðurnesjavaktarinnar, kynningu á úrræðum og fleiru sem er í boði á svæðinu og í framhaldinu fengu allir fulltrúar tækifæri til þess að kynna nánar sínar eigin stofnanir og samtök. Suðurnesjakonan Árelía Eydís Guðmundsdóttir dósent við Háskóla Íslands hélt skemmtilegt erindi og góð hvatningarorð til okkar Suðurnesjamanna. Lára Björnsdóttir formaður stýrihóps velferðarvaktarinnar hélt svo stutta tölu í lok dags. Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri í Sandgerði sá um fundarstjórn.

Í tilefni dagsins var einnig kynntur nýr bæklingur sem Suðurnesjavaktin tók saman og inniheldur úrræði og athafnir á sviði velferðarmála á Suðurnesjum 2011.

Velferðarvaktin var sett á laggirnar í kjölfar efnahagshrunsins en hlutverk hennar er að fylgjast með félagslegum jafnt sem fjárhagslegum afleiðingum bankahrunsins fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu með markvissum hætti og gera tilllögur um aðgerðir í þágu heimilianna. Velferðarvaktin er óháður álitsgjafi sem leggur fram tillögur til stjórnvalda og hagsmunaaðila. Suðurnesjavaktin hefur verið starfandi frá því í janúar á þessu ári.