Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

  • 130 björgunarsveitarmenn kallaðir út vegna neyðarkalls frá farþegaþotu
    Vélin lendir á Keflavíkurflugvelli nú áðan. VFmynd: Hilmar Bragi
  • 130 björgunarsveitarmenn kallaðir út vegna neyðarkalls frá farþegaþotu
Laugardagur 10. september 2016 kl. 15:51

130 björgunarsveitarmenn kallaðir út vegna neyðarkalls frá farþegaþotu

Mikill viðbúnaður var hjá björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu  vegna farþegaþotu sem sendi frá sér neyðarkall laust upp úr klukkan 11.00 í morgun þar sem  lítið afl var í öðrum hreyfli vélarinnar. Alls tóku um 130 björgunarsveitamenn þátt í aðgerðunum sem lauk eftir að flugmenn vélarinnar lentu henni farsællega á Keflavíkurflugvelli kl 14.40. Einnig tóku viðbragðsaðilar á Keflavíkurflugvelli og frá lögreglu á svæðinu þátt í aðgerðum.

Um borð í vélinni, sem er af gerðinni Boeing 767, voru 258 manns. Hún var á leið frá London til Edmonton í Kanada.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024