13% atvinnuleysi á Suðurnesjum í nóvember
Þrettán prósent atvinnuleysi var á Suðurnesjum í nóvember og meðalfjöldi atvinnulausra var 1460. Í lok mánaðar voru 1634 atvinnulausir, 910 karlar og 724 konur.
Í sama mánuði síðasta árs var atvinnuleysið á svæðinu 7,2%. Atvinnuleysið jókst úr 12,4% í síðasta mánuði.
Í Reykjanebæ voru 1167 atvinnulausir í nóvember, 159 í Sandgerði, 121 í Grindavík, 111 í Garði og 76 í Vogum.