Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

1218 útköll hjá Brunavörnum Suðurnesja í fyrra
Fimmtudagur 16. janúar 2003 kl. 13:24

1218 útköll hjá Brunavörnum Suðurnesja í fyrra

Heildarfjöldi útkalla slökkviliðs B.S. árið 2002, að meðtöldum sjúkraflutningum, var minni en í meðal ári, eða samtals 1218 útköll á móti 1388 árið 2001, sem var meðal ár. Þetta eru 3,4 útköll á dag en meðaltal síðustu 4 ára hafa verið 3,8 --eða tæplega 4 útköll á dag að meðaltali. Alls var kallað eftir aðstoð slökkviliðsins, utan sjúkraflutninga, í 169 tilfellum, eða einu færri en árið 2001.Á árinu 2002 var fjöldi útkalla vegna staðfestra elda samtals 47 og er þetta 14 eldum færri en árið 2001, sem er mjög athyglisvert. „Við greinum útköllin vegna staðfesta elda í tvo megin flokka, útköll vegna elda í mannvirkjum og eldar utan mannvirkja. Mesta fækkunin var í útköllum vegna elda utan mannvirkja, eða 16 eldum færri en árið en 2001. Fækkunin útkalla er mest í eldum utan bygginga m.a. sinueldar, eldur í bifreiðum og annað sem rekja má til þess að kveikt hafi verið í með ásetningi eða af gáleysi s.s. í rusli og fikti með eld. Fækkun útkalla má að miklu leiti rekja til aukins áherslu í forvörnum og má þar helst nefna fræðslu og rýmingar í skólum, hert byggingareftirlit og aukin eftirfylgni eldvarnareftirlits“, segir Sigmundur Eyþórsson slökkviliðsstjóri í samtali við Víkurfréttir.

Mesta brunatjónið á árinu 2002 var þegar verslunin Gallerí Förðun brann. Heildartjónið var metið um 21 milljón og þar af var tjón á húsnæðinu metið á um 7 milljónir, annað tjón í þessum bruna var m.a. á miklum lager og búnaði innandyra og mun það hafa verið hafa verið metið á um 14 milljónir. Verslunin var staðsett í húsnæði á Hafnargötu, sambyggð öðrum verslunum og var brunahólfun á milli þeirra veikar en reglugerðir gera ráð fyrir þannig að litlu mátti muna að ekki fór verr.

Önnur brunatjón voru mun minni, en þar má nefna einbýlishús við Hæðargötu, Íþróttavallarhúsið við Hringbraut og Bakkavör.

Útköll vegna mengunaróhappa voru samtals 11 á árinu og tengdust þau flest umferðaróhöppum þ.e. olíuleki, geymasýrur og önnur upphreinslun á olíu vegna umferðaróhappa.

Þá sendi slökkviliðið aðstoð til annarra slökkviliðiða og má þar helst nefna tvö tilfelli bruninn í Fákafeni í Reykjavík og bruninn á Laugavegi í Reykjavík.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024