Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

12 gefa kost á sér í prófkjöri Framsóknar
Laugardagur 16. desember 2006 kl. 12:39

12 gefa kost á sér í prófkjöri Framsóknar

Framboðsfrestur vegna prófkjörs Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi, sem fer fram þann 20. janúar, rann út síðdegis í gær.

Eins og áður hefur komið fram bjóða þeir Hjálmar Árnason og Guðni Ágústsson sig fram í fyrsta sætið, en á annað sætið stefna Bjarni Harðarson, Eygló Harðardóttir og Björn Bjarndal Jónsson.

Annars er listinn þeirra sem hafa gefið kost á sér svohljóðandi:

Bjarni Harðarson, í 2. sæti, Ritstjóri, Árborg, 45 ára

Björn Bjarndal Jónsson, í 2. sæti, Skógverkfræðingur, Árborg, 54 ára

Brynja Lind Sævarsdóttir, í 4.sæti, Flugöryggismaður, Reykjanesbæ  31 árs

Elsa Ingjaldsdóttir, í 3.sæti, Framkvæmdastjóri, Árborg, 40 ára

Eygló Harðardóttir,   í 2. sæti, Framkvæmdastjóri, Vestmanneyjum, 34 ára

Gissur Jónsson, í 4.-6.sæti, Grunnskólakennari, Árborg, 30 ára

Guðni Ágústsson, í 1. sæti, Landbúnaðarráðherra, Árborg, 57 ára

Guðni Sighvatsson, í 3.-4.sæti, Nemi í íþróttafræðum, Hellu, 26 ára

Hjálmar Árnason, í 1.sæti, Alþingismaður, Reykjanesbæ, 56 ára

Kjartan Lárusson, í 3. sæti, Sauðfjárbóndi og nemi, Bláskógabyggð, 51 árs

Lilja Hrund Harðardóttir, í 5.-6. sæti, Framkvæmdastjóri-Nuddari, Höfn, 34 ára

Ólafur Elvar Júlíusson, í 5.-6.sæti, Byggingatæknifræðingur, Hellu, 48 ára
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024