HSS
HSS

Fréttir

11 milljarða tekjur af Varnarliðinu
Þriðjudagur 25. mars 2003 kl. 11:15

11 milljarða tekjur af Varnarliðinu

Tekjur Íslendinga af varnarliðinu námu rúmlega 11 miljörðum á síðasta ári samkvæmt upplýsingum Seðlabankans um nettótekjur íslenska hagkerfisins af viðskiptum og þjónustu við varnarliðið. Inni í þeirri tölu eru til dæmis laun íslenskra starfsmanna á vellinum, kaup á vörum og þjónustu og verksamningar. Framlögin hafa lækkað undanfarin ár og voru mun meiri fyrir um 20 árum. Í byrjun síðasta árs voru íslenskir starfsmenn varnarliðsins og verktaka og stofnana, sem annast þjónustu við það tæplega 1700 talsins. Þá voru hermenn hjá varnaliðinu rúmlega 1900 og hefur fækkað um rúm 40% frá 1990, segir á fréttavef Rúv.Ef allt er talið nú; hermenn, makar þeirra og börn þá eru það um 4000 manns. Hjálmar Árnason, alþingsmaður sagði á Morgunvaktinni að efnahagsleg áhrif af veru varnarliðsins væru á við eitt álver.
Bílakjarninn
Bílakjarninn