Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Fréttir

103 umsóknir um 10 lóðir í Skerjahverfi
Einar Jón Pálsson og Magnús Stefánsson draga um lóðir í Skerjahverfi.
Fimmtudagur 2. desember 2021 kl. 17:22

103 umsóknir um 10 lóðir í Skerjahverfi

Á fundi Framkvæmda- og skipulagsráðs Suðurnesjabæjar  þriðjudaginn 30. nóvember var lóðum úthlutað í 1. áfanga Skerjahverfis í Sandgerði.  Alls voru 10 lóðir til úthlutunar, 2 fjölbýlishúsalóðir, 2 keðjuhúsalóðir og 6 raðhúsalóðir fyrir alls 54 íbúðir.  Að auki mun Bjarg íbúðafélag byggja 12 íbúðir í 1. áfanga hverfisins. Mikill áhugi var fyrir lóðunum en 103 umsóknir bárust í tæka tíð fyrir úthlunina og þurfti að draga milli umsækjenda um allar lóðirnar samkvæmt reglum um úthlutanir lóða í Suðurnesjabæ.  

Magnús Stefánsson bæjarstjóri var gestur fundarins og var hann fengin til að draga undir styrkri stjórn formanns ráðsins, Einars Jóns Pálssonar og vökulum augum annarra fundarmanna.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept


Niðurstaða lóðaúthlutana er skv. eftirfarandi:


Skerjabraut 1-7

6 umsóknir voru um lóðina sem er keðjuhús með 4 íbúðum.

Lóðarúthlutun: Húseignir Leirdal ehf.

Til vara 1, Lagnaþjónusta Suðurnesja ehf.

Til vara 2, Viðar J. ehf.


Skerjabraut 9-17

6 umsóknir eru um lóðina sem er keðjuhús með 5 íbúðum.

Lóðarúthlutun: Líba ehf.

Til vara 1, Fagurhóll Investments ehf.

Til vara 2, Húseignir Leirdal ehf.


Bárusker 2

3 umsóknir eru um lóðina sem er fjölbýlishús með 11 íbúðum.

Lóðarúthlutun: Biksteinn ehf.

Til vara 1, HP hús ehf.

Til vara 2, Húsanes verktakar ehf.


Bárusker 4

2 umsóknir eru um lóðina sem er fjölbýlishús með 11 íbúðum.

Lóðarúthlutun: HP hús ehf.

Til vara 1, Húsanes verktakar ehf.


Bárusker 3

12 umsóknir eru um lóðina sem er raðhús með 4 íbúðum.

Lóðarúthlutun: Vapp ehf.

Til vara 1, Dalsbygg ehf.

Til vara 2, Húsanes verktakar ehf.


Bárusker 5

14 umsóknir eru um lóðina sem er raðhús með 4 íbúðum.

Lóðarúthlutun: Líba ehf.

Til vara 1, Lagnaþjónusta Suðurnesja ehf.

Til vara 2, Dalsbygg ehf.


Bárusker 6

14 umsóknir eru um lóðina sem er raðhús með 4 íbúðum.

Lóðarúthlutun: Lagnaþjónusta Suðurnesja ehf.

Til vara 1, RH ehf.

Til vara 2, Vapp ehf.


Bárusker 7

17 umsóknir eru um lóðina sem er raðhús með 4 íbúðum.

Lóðarúthlutun: Cympa ehf.

Til vara 1, Húsanes verktakar ehf.

Til vara 2, Lagnaþjónusta Suðurnesja ehf.


Bárusker 8

10 umsóknir eru um lóðina sem er raðhús með 3 íbúðum.

Lóðarúthlutun: HE verk ehf.

Til vara 1, Viðar J. ehf.

Til vara 2, Dalsbygg ehf.


Bárusker 10

15 umsóknir eru um lóðina sem er raðhús með 4 íbúðum.

Lóðarúthlutun: Viðar J. ehf.

Til vara 1, Fagurhóll Investments ehf.

Til vara 2, Brix ehf.

Bílakjarninn
Bílakjarninn