Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Mánudagur 9. febrúar 2004 kl. 10:44

1000 e-töflur og 130 grömm af kókaíni gerð upptæk

Lögreglan í Keflavík, í samstarfi við lögreglu og tollgæslu á Keflavíkurflugvelli, lögregluna í Reykjavík,Tollstjórann í Reykjavík og lögregluna á Húsavík, hefur undanfarið unnið að rannsókn máls er varða innflutning á 1000 E-töflum og u.þ.b. 130 g af kókaíni. Í þágu rannsóknar var á föstudag lögð fram krafa hjá Héraðsdómi Reykjaness og Héraðsdómi Norðurlands eystra að átta einstaklingar yrðu úrskurðaðir í gæsluvarðhald og hefur Héraðsdómur Reykjaness þegar úrskurðað 6 aðila í gæsluvarðhald í 3-14 daga. Ekki verða gefnar frekari upplýsingar um málavexti að svo stöddu, segir á vef lögreglunnar.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024