HSS
HSS

Fréttir

Mánudagur 26. júní 2000 kl. 15:36

100 E-töflur í Keflavík

Maður á þrítugsaldri, búsettur í Reykjanesbæ, var stöðvaður af lögreglu þar sem hann var á ferð í Keflavík sl. miðvikudagskvöld. Við leit í bifreið hans fundust 100 E-töflur. Ökumaðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöðina til yfirheyrslu. Í framhaldinu voru tvær konur handteknar, þar sem þær voru taldar tengjast málinu. Þær eru tæplega tvítugar og einnig búsettar í Reykjanesbæ. Stúlkurnar voru yfirheyrðar og stóðu yfirheyrslur yfir í sólarhring, enda um umfangsmikið mál að ræða. Þremenningarnir hafa allir komið við sögu lögreglu áður. Fíkniefnadeild lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli og í Keflavík vinna nú sameiginlega að rannsókn málsins.
Bílakjarninn
Bílakjarninn