100 án atvinnu í Grindavík - Atvinnuleysið þar 3%
100 manns á atvinnuleysisskrá í Grindavík sl. föstudag, 47 karlar og 53 konur. Þetta er svipað hlutfall og verið hefur undanfarna mánuði, atvinnuleysi er því um 3%. 						 						 							
1.634 einstaklingar eru í dag án atvinnu á Suðurnesjum samkvæmt upplýsingum á vef Vinnumálastofnunar. Þar af eru 872 karlar en 762 konur. Á vefnum segir að ákveðna fyrirvara verður að hafa við mat á atvinnuleysi út frá þessum fjöldatölum, m.a. að um 20% eru í hlutastörfum á móti bótum.
Á vefnum eru jafnframt í boði fimm störf á Suðurnesjum. Þrjú þeirra eru fyrir menn vana múrverki en tvö við hugbúnaðargerð.

				
	
				


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				