Nýr meirihluti í Grindavík
Fulltrúar Framsóknarflokks, Grindavíkurlista og Samfylkingarinnar náðu fyrr í kvöld samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Grindavíkur. Skrifað verður undir samkomulagið á morgun.
Bryndís Gunnlaugsdóttir, oddviti Framsóknarflokks, sagðist í samtali við Rúv vera ánægðust með það að samkomulagið fæli í sér ný vinnubrögð. Þannig væri stefnt af samstarfi allra fulltrúa í bæjarstjórn óháð flokkum og því hverjir sætu í meirihluta og minnihluta í bæjarstjórn. Fulltrúum þeirra flokka sem eiga aðild að samstarfssamningum verði þannig tryggt frelsi til að greiða atkvæði um mál eftir eigin sannfæringu, hvort sem hún er í samræmi við álit meirihlutans eða ekki.
- Fréttir | 25. maí 2013 14:38Æskilegt að ráðast í álver í Helguvík
- Fréttir | 24. maí 2013 16:17Brennuvargs leitað - video
- Fréttir | 24. maí 2013 12:16Ragnheiður komin í ráðuneytið
- Fréttir | 24. maí 2013 11:57Sviptur eftir ölvunarakstur
- Fréttir | 24. maí 2013 10:09Bílvelta á Reykjanesbraut
- Fréttir | 24. maí 2013 09:43Fífldirfska á Valahnjúk


