Bygg
Bygg

Aðsent

Ylrækt á Suðurlandi eða álver í Helguvík?
Föstudagur 27. september 2013 kl. 11:36

Ylrækt á Suðurlandi eða álver í Helguvík?

Á ferð minni eftir Reykjanesbrautinni í  gær kveikti ég á útvarpinu og datt þar inn í viðtal við Ásmund Friðriksson, alþingismann í Suðurkjördæmi. Viðtalið snerist um það hvort flytja ætti rafmagn til útlanda eða nýta það hér innanlands. Ég deili þeirri skoðun með Ásmundi þingmanni, að rétt sé eins kostur er að nýta það rafmagn sem við framleiðum til atvinnuuppbyggingar hér á landi. Ásmundur nefndi m.a í þessu viðtali að það væru 150 MW ónotuð inn á kerfinu sem þyrfti að koma í vinnu.

Það sem vakti mesta athygli mína í viðtalinu var svar Ásmundar, þegar hann var spurður að því hvernig ætti að nýta þessi 150 megavött. Þingmaðurinn nefndi þá ylrækt á Suðurlandi en minntist ekki einu orði á álver í Helguvík sem við Suðurnesjamenn erum búnir að bíða svo lengi eftir.
Hvað veldur? Af hverju er ekki lengur talað um álver í Helguvík?
Margir, þar á meðal Ásmundur þingmaður, nældu sér í mörg atkvæði í síðustu alþingiskosningum út á það að gagnrýna fyrrverandi ríkisstjórn fyrir slóðaskap og fyrir að vinna gegn uppbyggingu álvers í Helguvík.

En nú er þessi vonda ríkisstjórn farin og önnur tekin við. Nú er tækifærið til þess að snúa við blaðinu og hefja framkvæmdir. Nú situr Suðurnesjamaður í stóli ráðherra iðnaðar og nú hafa verið kosnir á þing menn eins og Ásmundur Friðriksson sem var  duglegur við að minna okkur á dugleysi síðustu ríkisstjórnar í málefnum álvers í Helguvík.

En nú talar Ásmundur bara um ylrækt á Suðurlandi. Af hverju skyldi það nú vera? Er blómabúskapur á Suðurlandi það sem koma skal?

Guðbrandur Einarsson
 

Bílakjarninn
Bílakjarninn