HSS
HSS

Aðsent

Yfirlýsing frá Steinþóri Jónssyni vegna skrifa DV
Miðvikudagur 1. apríl 2009 kl. 14:38

Yfirlýsing frá Steinþóri Jónssyni vegna skrifa DV

Í dag 1. apríl hefur DV ákveðið að leggja fram dóm yfir störf mín sem fjárfestis og bæjarstjórnarmanns og vil ég þess vegna leiðrétta eftirfarandi.

* Bergið er félag í eigu á annars tugs einstaklinga og félaga og er skipað 5 manna stjórn. Félagið er því ekki í minni einkaeigu eins og fullyrt er. Félagið keypti á sínum tíma 9,5% hlut í Icebank sem fjármagnað var að stórum hluta með eigin fé eigenda. Það er því ekki rétt að félagið hafi fengið allt kaupverðið lánað eins og gefið er í skyn í grein DV.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

* Meðfylgjandi er yfirlýsing frá SPRON dagsett 27. júni 2008. „SPRON, fyrir hönd seljanda í Icebank, þ.e. SPRON hf og Byr Sparisjóðs, staðfestir að Bergið hefur staðið við allar eiginfjárgreiðslur vegna 9,5% hlutar í Icebank.“
* Ég á ekki og hef aldrei átt neinn hlut í Suðurnesjamönnum. Í því felst engin dómur á störf þess félags heldur aðeins til að halda til haga staðreyndum.
* Það er rangt að ég sé í varastjórn Sparisjóðsins í Keflavík.

Hluthafar Bergsins hafa verið stoltir eigendur í mikilvægum banka í íslensku þjóðlífi og þykir miður að framtíð hans sé í óvissu um þessar mundir. Eigendur félagsins vona hins vegar um leið að stjórnvöld sjái hag sinn í að tryggja framtíð hans.

Á minni starfsævi hef ég gengið vasklega fram í gríðarlega mörgum málum bæði fyrir bæinn minn og fyrirtæki. Hef ég þar unnið af heilindum fyrir samfélagið mitt og fjölskyldu og óska aðeins eftir því að mál mér tengdum fái sanngjarna umfjöllun.

Virðingarfyllst,
Steinþór Jónsson.