Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Vöndum okkur gagnvart börnum og ungmennum
Föstudagur 3. október 2008 kl. 15:54

Vöndum okkur gagnvart börnum og ungmennum


- Kennarasamband Íslands hvetur félagsmenn sína til að leggja sitt af mörkum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Í núverandi efnahagsástandi er hætt við því að mörg börn og ungmenni verði kvíðin og áhyggjufull. Landlæknisembættið hefur nú þegar sent frá sér frétt vegna þessa. Skólar og heimili þurfa að standa saman og vernda ungt fólk með því að varast óþarfa og háttstemmdar umræður um þessi mál, og með því að leggja áherslu á hið ánægjulega og skemmtilega í lífinu. Ofgnótt vátíðinda, í sumum tilfellum ofan á erfiðar aðstæður barna, geta verið mjög skaðlegar heill þeirra og heilsu. Kennarasamband Íslands beinir því til kennara og skólastjórnenda að leggja sitt af mörkum til að vinna gegn því að atburðir og málflutningur þeim tengdur um efnahagsmál skaði nemendur, segir í tilkynningu.