Vinstri grænir heimsækja Suðurnesjamenn
Dagana 19. og 20. september heimsækja þingmenn og fleiri forustumenn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs Suðurnes.
Boðið verður í kaffispjall í Vitanum í Sandgerði klukkan 17.30-19.00 en þar verða þau Ögmundur Jónasson, Jón Bjarnason og Þuríður Backman alþingismenn, Dögg Hugosdóttir formaður Ungra vinstri grænna og Katrín Jakobsdóttir varaformaður flokksins.
Á sama tíma eða klukkan 17.30-19.00 verður spjall yfir kaffibolla í Saltfiskssetrinu í Grindavík með þeim Kolbrúnu Halldórsdóttur alþingismanni, Steingrími J. Sigfússyni formanni, Svandísi Svavarsdóttur framkvæmdastjóra og Degi Snæ Sævarssyni formanni Ungra vinstri grænna í Reykjavík.
Hópurinn mun fara um ásamt heimamönnum og heimsækja vinnustaði, skóla og fleiri stofnanir og hitta sveitarstjórnarmenn og fleiri aðila að máli. Heimsókninni lýkur með opnum og almennum stjórnmálafundi þar sem rædd verða bæði málefni Suðurnesja og stjórnmál líðandi stundar. Fundurinn verður haldinn í Ingimundarbúð á Ránni í Keflavík þriðjudagskvöldið 20. september klukkan 20.00. Allir velkomnir.