Vinstri grænir á Ránni í kvöld

Hópurinn mun fara um ásamt heimamönnum og heimsækja vinnustaði, skóla og fleiri stofnanir og hitta sveitarstjórnarmenn og fleiri aðila að máli.
Heimsókninni lýkur með opnum og almennum stjórnmálafundi í kvöld þar sem rædd verða bæði málefni Suðurnesja og stjórnmál líðandi stundar.
Fundurinn verður haldinn í Ingimundarbúð á Ránni í Keflavík í kvöld klukkan 20.00. Allir velkomnir.