Bygg
Bygg

Aðsent

Vinsamleg ábending til fyrirtækja á Suðurnesjum
Fimmtudagur 26. október 2006 kl. 09:10

Vinsamleg ábending til fyrirtækja á Suðurnesjum

Nú við brotthvarf Varnarliðsins hefur fjöldi fólks hafið leit að nýju starfi. Umsækjendur leggja sig fram við að setja á blað nákvæmar persónuupplýsingar og gögn sem tengjast viðkomandi og senda til fyrirtækja sem auglýsa laus störf í von um að reynsla þeirra gæti nýst fyrirtækinu. Fjölmargir hafa undanfarið bent mér á að verulega mætti bæta upplýsingar um afdrif umsókna sem það hefur lagt inn hjá fyrirtækjum. Umsækjendur kvarta einna helst yfir því, að eftir að umsókn er send í kjölfar auglýsingar, heyrist hvorki hósti né stuna frá þeim sem auglýsti. Það að svara ekki umsóknum þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin er e.t.v. léttvægt í augum fyrirtækja en í augum umsækjenda ber þetta vott um virðingarleysi sem felst í því að persónuupplýsingar liggja á stöðum þar sem umsækjendur vita ekki um afdrif þeirra. Virðist þetta vera algengur misbrestur hjá mörgum atvinnurekendum eða stjórnendum fyrirtækja hér á svæðinu.

Þeir umsækjendur sem leggja inn umsóknir í von um starf án þess að fyrirtækið hafi auglýst fá oft viðbrögð við umsóknum sínum um leið og þær berast fyrirtækinu. Þau viðbrögð eru oftar en ekki á þá leið að ekkert starf sé á lausu eins og er, en umsókn viðkomandi verði tekin til greina ef einhverjar breytingar verða. Þessi viðbrögð eru vissulega góð og gild. Þau fyrirtæki sem meðtaka umsóknir á þennan hátt ættu þó að setja sér ákveðnar reglur um svörun. Gott viðmið er t.d. að senda svarbréf til þeirra umsækjenda sem hafa lagt inn gögn eftir að 3 mánuðir eru liðnir með boði um áframhaldandi athugun eða endursendingu gagna.

Það verkefni að finna starfsfólki á varnarsvæði ný störf hefur gengið vonum framar. Þó er enn hópur reynslumikils og fjölhæfs fólks sem ekki hefur fengið lausn sinna mála og sækir um störf í góðri von. Ég hvet stjórnendur fyrirtækja til að taka umsóknir þeirra til alvarlegrar skoðunar og svara umsóknum eins fljótt og auðið er. Þannig heldur fyrirtækið virðingu fólksins sem oftar en ekki er einnig viðskiptavinur þess.

Með vinsemd,
Helga Jóhanna Oddsdóttir
Forstöðumaður ráðgjafarstofu starfsmanna á varnarsvæði.

Bílakjarninn
Bílakjarninn