Vilt þú starfa á miðjunni?
Enn er ekki ljóst hvort stillt verði upp lista flokksins í suðurkjördæmi eða prófkjörsleiðin valin en ákvörðun um það verður væntanlega tekin fljótlega. Brýnt er í aðdraganda kosninga að fá öfluga liðsmenn til starfa sem eru reiðubúnir að berjast fyrir málefnum Framsóknarflokksins í þágu kjósenda enda mikið og skemmtilegt starf við málefnavinnu framundan.
Ljóst er að Framsóknarflokkurinn hefur mátt þola á stundum, óverðskuldaða gagnrýni á landsvísu frá pólitískum mótherjum. Mikið verk er fyrir höndum hjá flokknum við að kynna stefnumál sín og þurfum við góða liðsheild og brýnt er að eindrægni og góður andi ríki í starfinu sem framundan er. Það er öllum ljóst að ný forysta flokksins á eftir að kynna sig betur fyrir landsmönnum og þurfa framsóknarmenn að koma fram sem ein heild í komandi baráttu, slíkt mun gagnast flokknum best.
Aðalfundur fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Reykjanesbæ er nýlokið og var Arngrímur Guðmundsson kjörinn nýr formaður fulltrúaráðsins. Framsóknarmenn í Reykjanesbæ hittast á vikulegum fundum í Framsóknarhúsinu, Hafnargötu 62 á laugardagsmorgnum þar sem málin eru rædd og skipst er á skoðunum um flokksstarfið.
Starf Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ er með ágætum en betur má ef duga skal. Við þurfum öll að leggjast á eitt til að ná settu marki og stuðla að góðum sigri flokksins í kjördæminu sem og landinu öllu næsta vor.
Því er brýnt að hvetja alla sem áhuga hafa á að starfa í lýðræðislegum miðjuflokki að ganga til liðs við Framsóknarflokkinn.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um starfið á heimasíðu flokksins í Reykjanesbæ á www.xbreykjanesbaer.is. þar er einnig hægt að panta viðtalstíma við bæjarfulltrúa okkar Eystein Jónsson.
Brynja Lind Sævarsdóttir
Formaður FUF í Reykjanesbæ.