Vilhjálmur Árnason í 3.-4. sæti Sjálfstæðismanna
Ég Vilhjálmur Árnason hef ákveðið að gefa kost á mér í 3. – 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í komandi prófkjöri.
Ég er fæddur og uppalinn í Skagafirði. Lauk ég stúdentsprófi af viðskipta- og hagfræðibraut frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og hef einnig lokið námi frá Lögregluskóla ríkisins. Samhliða námi rak ég sjálfstæðan atvinnurekstur. Nú er ég búsettur í Grindavík ásamt sambýliskonu minni Sigurlaugu Pétursdóttur. Ég starfa sem lögreglumaður hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum og stunda ökukennaranám við Háskóla Íslands.
Ég hef starfað mikið að félagsmálum og vil láta gott af mér leiða og taka þátt í uppbyggingu samfélagsins. Ég sat 3 ár í stjórn nemendafélags Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, eitt þeirra sem forseti, nú starfa ég í stjórn Landsambands lögreglumanna.
Fram til þessa hef ég verið virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins, hef verið í kosningastjórn í sveitastjórna- og alþingiskosningum, var formaður Víkings félags ungra Sjálfstæðismanna í Skagafirði og er nú formaður Freyju félags ungra Sjálfstæðismanna í Grindavík.
Ég vil beita kröftum mínum í að byggja upp bjarta og hamingjusama framtíð fyrir fólkið í landinu. Það vil ég gera með heiðarlegum og upplýstum hætti í samvinnu við fólkið.
Mín framtíðarsýn er að auðvelda verður atvinnulífinu í byggðum landsins að dafna svo það geti séð heimilum landsins fyrir tekjum og þjónustu til að vaxa úr grasi. Til að það verði hægt verður að styrkja sveitarfélögin, tryggja öryggi, efla menntun heima í héraði, nýta auðlindirnar á hagkvæman hátt og hafa öruggar og góðar samgöngur.
Ég er 25 ára, námsmaður, lögreglumaður og hef á undanförnum árum tekið sjálfstæðan þátt í atvinnulífinu. Því tel ég mig hafa góða sýn í raunverulegar aðstæður fólks í dag. Ég tel mig hafa margt til málanna að leggja og vil koma að því uppbyggingarstarfi sem fyrir hendi er sem fulltrúi unga fólksins.
Framboðið hefur opnað heimasíðuna www.villiarna.is
Lifið heil inn í bjarta framtíð.
Vilhjálmur Árnason