Viðskiptaráðherra á félagsfundi Samfylkingarinnar í kvöld

Samfylkingin í Reykjanesbæ heldur félagsfund í kvöld mánudag 17. nóvember kl. 20 á Víkinni Hafnargötu 80. Guðbrandur Einarsson oddviti A-listans mun fjalla um fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar auk þess sem kosið verður í fulltrúaráð Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ.
Sérstakur gestur fundarins er Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra.
Stjórnin





 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				