Við þorum. Þorir þú?
Ungir Jafnaðarmenn á Suðurnesjum börðust hart fyrir því að fá fulltrúa ungs fólks á Suðurnesjum ofarlega á framboðslista Samfylkingarinnar. Það var hlustað á unga fólkið í Samfylkingunni og við fengum það í gegn. Brynja Magnúsdóttir er fimmti maður á S - lista í Suðurkjördæmi.Ef Samfylkingin í Suðurkjördæmi nær fjórða manni inn á þing þá er það góður sigur fyrir Suðurnesjamenn því fjórði maður á listanum er Jón Gunnarsson. Það er enn stærri sigur fyrir unga Suðurnesjabúa því þá er hin 25 ára Brynja Magnúsdóttir, formaður UJ á Suðurnesjum, fyrsti varaþingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Ekki má heldur gleyma því að í þriðja sæti situr annar fulltrúi ungs fólks; Björgvin G. Sigurðsson sem barðist hart gegn samræmdum stúdentsprófum á Alþingi. Samfylkingin setur málefni ungs fólks á oddinn og er ekki hrædd við að setja ungt fólk ofarlega á framboðslista hvarvetna.
Lækkum meðalaldur á Alþingi. Leiðréttum stjórnkerfi núverandi ríkisstjórnar í fiskveiðum og menntamálum. Kjósum rökréttar breytingar. Gerum Jón Gunnarsson, Suðurnesjamann að þingmanni okkar. Gerum Brynju Magnúsdóttir, fulltrúa ungs Samfylkingarfólks, að fyrsta varamanni Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.
Við þorum. Þorir þú? X-S
Hallbjörn V. Rúnarsson
Situr í stjórn Ungra jafnaðarmanna á Suðurnesjum