Við leitum að öflugum kvenfrumkvöðlum á Suðurnesjunum!
Í febrúar næstkomandi munu Frumkvöðlasetrið á Ásbrú og SKASS (Samtök kraftmikilla, alvöru, skapandi Suðurnesjakvenna) fagna öflugum kvenfrumkvöðlum á Suðurnesjunum. Við ætlum að hvetja þær til dáða og láta þær verða öðrum konum á Suðurnesjunum öllum hvatning og innblástur.
Þess vegna stendur nú yfir leit að kvenfrumkvöðlum á Suðurnesjum. Veist þú um einhverjar sem þú getur bent okkur á? Sendu okkur þá línu á [email protected]
Fólki finnst orðið „frumkvöðull“ eiga misvel við sig og sín verkefni og því viljum við koma eftirfarandi á framfæri: Frumkvöðull er forgöngumaður eða -kona, upphafsmaður eða - kona, sá eða sú sem byrjar eitthvað nýtt, brautryðjandi, aðili sem kemur auga á nýja möguleika (t.d. í atvinnurekstri) og hrindir þeim í framkvæmd.
Nú þegar er nokkur fjöldi nafna kominn á blað og má sjá listann á vefsíðu SKASS, skass.org og á síðu Frumkvöðlasetursins, incubator.asbru.is. Það er um að gera að kíkja á listann og sjá hvort það kveikir ekki einhverjar hugmyndir að frumkvöðlum sem þú getur bent okkur á.
Febrúarfundur SKASS mun verða haldinn í Frumkvöðlasetrinu á Ásbrú og helgaður þessum konum. Því viljum við finna þær og fá þær til að koma og kynna fyrir okkur hinum það sem þær hafa verið og eru að gera.
Fyrir ykkur sem ekki þekkið til SKASS eða Frumkvöðlasetursins á Ásbrú:
SKASS eru opin samtök fyrir konur á Suðurnesjunum. Tilgangurinn er að efla tengslanet Suðurnesjakvenna, fræðast og fræða, efla okkur sjálfar og um leið hvor aðra og styðja konur á Suðurnesjunum til dáða í námi og starfi. Þú getur fengið að vita meira á vefsíðunni skass.org. Fundir eru fyrsta þriðjudag í mánuði kl. 20:00, almennt í húsnæði Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum í Krossmóa. Fundirnir eru opnir og allar konur velkomnar!
Frumkvöðlasetrið á Ásbrú hefur þann tilgang að styðja við þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í að þróa viðskiptahugmynd eða sín fyrstu skref í rekstri. Setrinu er ætlað að auka möguleika þessara aðila til að byggja upp sterk og öflug fyrirtæki á Suðurnesjunum. Setrið býður m.a. vinnuaðstöðu, ýmsa endurgjaldslausa ráðgjöf, námskeið, fræðsludagskrá og fleira. Þú getur fengið að vita meira á vefsíðunni incubator.asbru.is. Það eru allir velkomnir í Frumkvöðlasetrið. Eina sem þarf að gera er að panta viðtal með því að senda línu: [email protected]