Við erum til staðar fyrir þig
Þegar líður að lokum ársins 2010 er gott að horfa yfir farinn veg. Starfsemi MSS hefur verið mikil á árinu og fjölmargir einstaklingar hafa verið í námi, sótt námskeið eða nýtt sér þá ráðgjöf sem er í boði. Á tímum sem þessum er nauðsynlegt að til sé staður sem hægt sé að leita til þegar einstaklingar standa frammi fyrir því að þurfa að efla sig og styrkja jafnt persónulega sem á vinnumarkaði. Starfsfólk MSS kappkostar við að taka vel á móti öllum í hlýju og notalegu umhverfi og það er alltaf gleðilegt þegar nám eða ráðgjöf hafa jákvæðar breytingar í för með sér eins og sjá má á eftirfarandi tilvitnun frá 26 ára kvenkyns nemanda „það var mikilvægt á tíma sem þessum að draga sig upp úr vonleysinu og skammdegisþunglyndinu og hvað er betra en að skella sér í skóla. Ég hafði mjög gott af þessu og að fá reglu í líf mitt og ég mæli eindregið með að fólk skelli sér í skóla ef það fær tækifæri á því“.
Nám fyrir alla
Mikil aðsókn hefur verið í námsleiðir MSS og hafa t.d. Menntastoðir slegið í gegn en það er nám fyrir einstaklinga sem vilja hefja framhaldsskólanám að nýju. Aðrar vinsælar námsleiðir eru t.d. Færni í ferðaþjónustu, Skrifstofuskólinn, Sterkari starfsmaður, nám fyrir lesblinda o.fl. Það hefur verið áberandi hversu vel atvinnuleitendur hafa notað tækifærið á meðan á atvinnuleysinu stendur til að bæta þekkingu sína og sækja þá í styttri eða lengri námsleiðir með það í huga. Margir möguleikar eru í boði og styðja bæði Vinnumálastofnun og stéttarfélög við þá einstaklinga sem vilja bæta stöðu sína á einhvern hátt.
Náms- og starfsráðgjöf
Hjá MSS er sérstakt ráðgjafasvið og hefur aðsókn þar stóraukist undanfarin ár. Það þykir orðið sjálfsagt að leita til náms- og starfsráðgjafa þegar breytingar verða á högum einstaklinga og býður MSS upp á þá þjónustu öllum að kostnaðarlausu. Einnig hefur í 1 ½ ár verið í boði námskeið fyrir einstaklinga sem kallast Árangursríkari starfsleit en á námskeiðinu gera þátttakendur færnimöppu, ferilskrá og fara í áhugasviðsgreiningu.
Námskeið fyrir lesblinda
Boðið hefur verið reglulega upp á nám fyrir lesblinda og er hægt að komast í lesblindugreiningar hjá MSS. Boðið er upp á námið Aftur í nám sem byggir á Ron Davis aðferðinni, sem hefur verið hvatning fyrir marga lesblinda til að hefja nám að nýju. Markmiðið með námsleiðinni er að styrkja sjálfstraust námsmanna, þjálfa þá í lestri og skrift og stuðla að jákvæðu viðhorfi til áframhaldandi náms.
Raunfærnimat
MSS hefur tekið virkan þátt í þróun raunfærnimats hér á Íslandi undanfarin ár og um þessar mundir er tilraunaverkefni í gangi hér á Suðurnesjum um raunfærnimat í skrifstofugreinum. Margir einstaklingar á vinnumarkaðnum hafa áralanga reynslu og umtalsverða færni í skrifstofugreinum, en hafa ekki formlega menntun á því sviði. Þessir einstaklingar búa yfir raunfærni sem vert er að skoða og meta. Áhugasamir eru hvattir til að skoða þennan möguleika því enn er hægt að koma inn í verkefnið, fara í gegnum raunfærnimat, fá þekkingu sína og færni metna inn í skólakerfið og stytta þannig skólagöngu sína.
MSS er m.a. stofnun sem er ætluð fólki í atvinnulífinu sem vill styrkja sig með sí- og endurmenntun, fyrir einstaklinga sem standa frammi fyrir breytingum og vilja efla sig og öllum þeim sem vilja styrkja sína grunnmenntun. Framundan er fjölbreyttur og skemmtilegur vetur hjá MSS og hvetjum við alla til að kynna sér framboðið á www.mss.is kíkja á Facebooksíðuna okkar, koma í heimsókn að Krossmóa 4 Reykjanesbæ eða Víkurbraut 56 Grindavík. Við tökum vel á móti ykkur.
Guðjónína Sæmundsdóttir,
forstöðumaður Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum.
(Grein úr Víkurfréttum 29. desember 2010. Þar birtist hún án meðfylgjandi skýringamynda).