Við erum ekki launanna virði!
Davíð Jón Kristjánsson skrifar.
Ég heiti Davíð Jón Kristjánsson og er starfsmaður í Ráðhúsi Reykjanesbæjar á fjöskyldu og félagssviði, þar erum við tvö sem einöngu störfum við málefni sem snúa að hælisleitendum. Mér þykir mjög vænt um starfið mitt og allt það frábæra fólk sem ég vinn með á hverjum degi.
Á mánuði er ég með u.þ.b 270.000 kr. í grunlaun fyrir skatta skv. kjarasamningum, ofan á það fæ ég 30 næturvinnutíma (vann þó 48 næturvinnutíma síðustu 10 dagana í oktober), ég er einnig með bílastyrk.
Þetta eru nú öll ofurlaunin sem maður hefur hjá bænum. Og fyrir þessi ofurlaun hef ég þurft að sinna ýmsum miserfiðum verkefnum t.d jarða nýfætt barn, ég hef setið yfir einstaklingum í sjálfsvígs hugleiðingum vegna þess að þeir fá ekki inni á viðeigandi stofnunum, í hungurverkföllum o.fl. Ég hef fengið yfir mig svívirðingar, hótanir um líkamsmeiðingar og jafnvel nauðganir. Ég hef þurft að kalla til lögreglu eftir aðstoð oftar en ég get talið. Ég hef líka fengið að kynnast og vinna með fullt af yndislegu og frábæru fólki allsstaðar af úr heiminum og það er það sem gerir starfið þess virði að vinna það, ekki ofurlaunin!
Í gær fékk ég ásamt 749 öðrum starfsmönnum Reykjanesbæjar eiginlegt uppsagnarbréf sent í tölvupósti. En í bréfinu er okkur tilkynnt á af okkur séu teknar allar sporslur þ.e. bílastyrkur og næturvinna. Bréfið var undirritað af Friðjóni Einarssyni fulltrúa meirihlutans í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, bréfið var þó ekki sent af honum til starfsmanna né heldur af bæjarstjóra, hvorugur þeirra hafði „hreðjar“ í það. Heldur var ritara bæjarstjóra falið að senda þetta til okkar starfsmannanna og enginn til svara ef eftir var leitað. Þetta var vissulega mikið áfall fyrir allan þann fjölda sem hér starfar, fólk var sárt og reitt en enginn af þeim sem komu að þessari ákvörðun hafði séð það fyrir. Margir áttu erfitt með að sinna vinnu sinni það sem eftir leið dags og sumir hefðu einfaldlega þurft á áfallahjálp eða handleiðslu að halda, einhvern til að tala við en enginn þessara „háu herra“ gátu séð það fyrir.
Þessi aðgerð var samþykkt í bæjarráði þennan sama morgun 6. Nov 2014, nokkrum mínútum áður en „fjölpósturinn“ var sendur á starfsmenn Reykjanesbæjar. Þessi aðgerð var samþykkt af þremur fulltrúum meirihlutans í bæjarráði, Árni Sigfússon fyrrverandi bæjarstjóri Reykjanesbæjar og einn af tvem fulltrúum sjálfstæðisflokksinns sat hjá og Böðvar Jónsson sagði nei við tillögunni.
Á sama fundi bæjarráðs lagði Kristin Jakobsson fulltrúi framsóknarflokks til að frá og með 1. janúar 2015 falli föst laun bæjarráðsmanna niður og einungis verði greitt fyrir setu á stökum fundum bæjarráðs. Þessi aðgerð myndi spara bæjarfélaginu 28,5 milljónir á kjörtímabilinu. Tillagan var feld.
Þegar fólk svo mætti til vinnu í morgun var talað um að allavega þrír starfsmenn hjá Ráðhúsinu, þrír sérfræðingar á sínu sviði höfðu sagt starfi sínu lausu og fleiri eiga eftir að fylgja. Við eigum mjög hæft starfsfólk, fagfólk og allir sérfræðingar á sínu sviði.
Viljum við sjá á eftir þessu fólki?
Komum við til með að fá nýtt og hæft fólk til starfa við þessi skilyrði?
Davíð Jón Kristjánsson.
Starfsmaður Reykjanesbæjar