Sjómannakveðjur 3
Sjómannakveðjur 3

Aðsent

Við ætlum og lofum og da da da da ...
Miðvikudagur 24. apríl 2013 kl. 12:02

Við ætlum og lofum og da da da da ...

Við ætlum. Við lofum. Við erum til sýnis og sölu. Við erum vegnir og metnir á svipuðum skala og hlutabréfin í kauphöllum veraldar, gengi okkar fer upp – og niður. Hjá okkur kallast það skoðanakannanir en í braskinu, NASDAQ. Þegar gengið fer upp þá gleðjumst við og þökkum okkur allt hið góða í veröldinni – sem og annars staðar. Þegar gengið fer niður skiptum við um jakkaföt eða fólk og verðum hrein af syndum ferðranna. Við erum Stjórnmálaflokkarnir!    

Stundum eignumst við þingmenn og þá finnst okkur gaman því við viljum ekkert frekar en eiga þingmenn sem vinna fyrir okkur, eru í vinnu hjá okkur við að vinna vel fyrir þá sem leggja fé í sjóðina okkar og stjórna okkur. Við erum Stjórnmálaflokkarnir!

Við svörum aldrei til saka og við berum ekki ábyrgð á neinu. Fari eitthvað úrskeiðis er það öðrum að kenna eða utanaðkomandi aðstæðum okkur óviðkomandi af því að við lútum engum lögmálum. Þannig er sama hvernig við stöndum okkur, við eigum fastafylgi fólks sem þolir okkur ekki og hatar nánast dag hvern í fjögur ár en kýs okkur svo á fjögurra ára fresti af því að við lútum ekki lögmálum. Við erum Stjórnmálaflokkarnir.

Vilji fólk stöðugleika þá kýs það okkur og ef fólk vill góðæri þá kýs það okkur, ef fólk vill vinnu þá kýs það okkur, ef fólk vil ráðdeild þá kýs það okkur og ef fólk vill frelsi þá kýs það okkur og ef fólk vill hreinleika þá kýs það okkur, Stjórnmálaflokkana! Að launum fá kjósendur viðvarandi óstöðugleika og kreppu, atvinnuleysi og sukk í fjármálum og höft og skít og spillingu í hverju horni, samtryggingu og getuleysi. Og sjá, hin þrautpínda þjóð mun streyma á kjörstað og kjósa okkur, Stjórnmálaflokkana!

J-listar Regnbogans eru boðnir fram um allt land! Regnboginn er ekki stjórnmálaflokkur! Þú getur ekki gengið í Regnbogann ekki frekar en að þú getur komist undir enda hans og óskað þér. Regnboginn er það form einstaklingskosningar sem næst má komast í núverandi kosningakerfi. Ég, Guðmundur Brynjólfsson, innfæddur Suðurnesjamaður, biðla til ykkar Suðurnesjamanna að kjósa Regnbogann og þannig mig til að vinna að brýnustu málefnum svæðisins næstu fjögur ár. Næg eru verkefnin og það hvarflar ekki að mér að gera svo lítið úr ykkur að fara að telja þau upp í einni lítilli blaðagrein. ÞIÐ VITIÐ HVAÐ ER AÐ!

Í skoðanakönnun síðasta haust kom í ljós að 44% íbúa Suðurkjördæmis vildu sjá Bjarna Harðarson bóksala á Selfossi sem þingmann sinn! Af þessu má sjá að Bjarni sem skipar efsta sæti J-listans er líklegur til að fá góða kosningu á laugardaginn, ég bið ykkur að lyfta undir og flykkjast um Regnbogann þannig að hann fái hér tvo menn í kjördæminu, Bjarna og þann sem þetta skrifar.

Gefið Stjórnmálaflokkunum frí en einstaklingunum tækifæri! X-J

Guðmundur Brynjólfsson
er rithöfundur og djákni og skipar 2. sæti J-lista Regnbogans.

Bílakjarninn
Bílakjarninn