VG bætir hag barnafjölskyldna
Þegar bæta á hag barnafjölskyldna duga engar skyndilausnir eða loðin loforð. Það skiptir íslenskar barnafjölskyldur mestu að stjórnvöld hugi að samfélagsþróun til langs tíma með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Það eru hagsmunir íslenskra barna að ekki sé gengið á náttúruauðlindir þjóðarinnar, að grunnstoðirnar séu ekki færðar í hendur einkaaðila, að efnahags- og atvinnustefna geri ráð fyrir sjálfbærri og jafnri uppbyggingu þar sem hvorki er gengið á samfélagsleg gæði né náttúruauðlindir. Börnin munu erfa landið – og vel skal vanda til þess sem lengi skal standa.
Vinsti græn hafa beitt sér innan ríkisstjórnarinnar til að styðja fjölskyldur í greiðsluvanda, svo sem með því að stórauka vaxtabætur. Brýnt verkefni framundan er að endurskoða íslenska húsnæðiskerfið til framtíðar. Það þarf að endurskoða verðtrygginguna, hugsanlega setja vaxtaþak á hana, tryggja að óverðtryggð lán verði í boði hjá Íbúðalánasjóði á félagslegum grunni og að byggður verði upp öflugur leigumarkaður, með aðkomu stjórnvalda í byrjun, sem geri leiguhúsnæði að öruggum valkosti fyrir fjölskyldufólk. Þar ætti að líta til húsnæðissamvinnufélaga þar sem íbúar verða rétthafar í félögunum og reksturinn er í þágu íbúa en ekki hluthafa á markaði.
Ríkisstjórnin hefur nú þegar breytt lögum um fæðingarorlof, hækkað viðmiðunarfjárhæðir sem skornar voru niður í kreppunni og hafið lengingu orlofs í áföngum upp í eitt ár. Samhliða lengingu fæðingarorlofs ætti að fjölga leikskólaplássum þannig að foreldrar lendi ekki í vanda við að brúa bil milli fæðingarorlofs og leikskóladvalar. Stefna ber að enn frekari hækkun barnabóta, þó mikilvægum áfanga sé náð í núgildandi fjárlögum.
Vinstri græn vilja tryggja börnum þá vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst eins og segir í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem nú hefur verið lögfestur. Í því felst að tryggja skilyrðislausan aðgang barna að grunnþjónustu, öflug barnavernd og forvarnir til að koma í veg fyrir ofbeldi. Við Vinstri græn fögnum mikilvægu frumkvæði UNICEF á Íslandi, sem hefur lagt fram ítarlegar tillögur um aðgerðir gegn ofbeldi, þ.á m. að stofnað verði ofbeldisvarnarráð. Áfram þarf að vinna að forvörnum gegn kynferðislegu ofbeldi og efla rannsóknir á ofbeldi.
Hvetja þarf til umhverfisvænni neysluhátta og þar skipta fjölskyldurnar lykilmáli. Við viljum lækka virðisaukaskatt á umhverfisvottuðum vörum og stuðla þannig að bættum kjörum barnafjölskyldna og bættu umhverfi. Vinnuvikuna á að stytta án þess að skerða kjör og tryggja þannig fjölskyldum fleiri samverustundir.
Við vnstri græn berum hag barnafjölskyldna mjög fyrir brjósti. Það gerðum við í hruninu m.a. með því að standa vörð um mennta- og heilbrigðiskerfið og forða þeim frá hruni. Við munum standa vörð um fjölþætta hagsmuni þeirra á næsta kjörtímabili, hvort heldur í stjórn eða stjórnarandstöðu, en kjósendur ráða miklu um það hve mikið afl við munum hafa til þess.
Þorvaldur Örn Árnason,
líffræðingur og kennari, Vogum