Vetrardagskrá Sálarrannsóknafélags Suðurnesja
Heilir og sælir félagsmenn og unnendur andlegra mála. Ýmislegt er það sem hægt er að sækja til félagsins í vetur Við vonum að starfsemin nái athygli flestra og félagsmenn og
aðrir sjái sér fært að vera með.
Bæna og hugleiðsluhringir hafa verið starfandi undanfarin ár og verður svo líka í vetur. Þeir sem hafa áhuga á að vera með hafi samband við Hrefnu, á skrifstofutíma félagsins. Frá kl: 13 –16. virka daga.Fyrirbænir í síma 421-3348
Fyrirhugað er að hafa fría heilun annan hvern laugardag í vetur á milli Kl: 13-16. Allir eru velkomnir. Heilarar eru Guðmundur Björgvinsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Davíð Valgarðsson og Hrefna Kristjánsdóttir. Hjá félaginu er líka hægt að panta einkatíma í heilun gegn gjaldi. Auglýst verður hvaða laugardag verður byrjað.
Hægt er að panta tíma hjá félaginu í Höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun, en það er meðferðarform sem tekur á mörgum sjúkdómseinkennum sem hrjáir fólk og örfar líkama og sál til að komast í jafnvægi og skapa með sér heilbrigði.
Skyggnilýsingafundur. Fyrsti fundur var haldinn 14 sept. með Maríu Sigurðardóttur. Fyrirhugað er að vera með slíka fundi reglulega í vetur. Þeir þá auglýstir með stuttum fyrirvara.
Starfandi miðlar hjá félaginu í vetur eru : María Sigurðardóttir, Guðrún Hjörleifsdóttir, Skúli Lórenz, Þórhallur Guðmundsson, Hermundur R.Sigurðsson, Valgarður Einarsson , Lára Halla og fl.góðir. Tímapantanir eru á skrifst.tíma frá Kl. 13-16..
María Sigurðard. Og Guðrun Hjörleifsd.voru með námskeið núna 1 september. Það kallast Skref Fyrir Skref . Allar upplýsingar um það er að finna hjá Hrefnu Kristjánsd.er svarar í síma félagsins. Fyrirhugað er að halda samskonar námskeið aftur þegar líða fer á veturinn.
Opið hús hefur verið hjá félaginu undanfarna vetur. Þá hafa verið fengnir fyrirlesarar sem komið hafa með sitthvað fróðlegt og skemmtilegt. Sami háttur verður hafður á í vetur. Félagsmenn eru hvattir til að mæta , hlusta á fyrirlestra og fá sér kaffi , spjalla og eiga góða kvöldstund. Aðgangur er ókeypis.
Fyrsta kvödlið verður 08,10,2003 , miðvikudagskvöld (takið það frá) þá verður Reynir Katrínar með fyrirlestur um gyðjuheilun og fl,
Á aðventunni í desember er ákveðið að vera með hátíðar- kvöldstund. Þar sem við drögum úr hávaðanum og óeirðinni í kringum okkur og sköpum með okkur kyrrláta helgistund. Félagsmenn fjölmennið. Dagsetning verður auglýst síðar.
Í stjórn félagsins eru eftirfarandi :
Hilmar Hafsteinsson formaður
Sumarrós H. Ragnarsdóttir vara-formaður
Sigurbjörg Sigurðardóttir gjaldkeri
Guðmundur Björgvinsson meðstjórnandi
Guðrún Guðmundsdóttir meðstjórnandi
Varastjórn : Þóra Þórhallsdóttir meðstjórnandi
Hafdís Þórhallsdóttir ritari.
Tímapantanir eru á opnunartíma félagsins frá 12-16 virka daga
Sími 421-3348