Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Verkefninu Jól í skókassa hrundið af stað í 10. skipti
Föstudagur 25. október 2013 kl. 09:52

Verkefninu Jól í skókassa hrundið af stað í 10. skipti

Nú í ár verður verkefninu „Jól í skókassa“ hrundið af stað í 10. skiptið en það var fyrst framkvæmt haustið 2004 og er samstarfsverkefni KFUM og KFUK á Íslandi við KFUM í Úkraínu.  Líkt og undanfarin ár gengur verkefnið út á að fá fólk á öllum aldri til að útbúa og gefa skókassa með jólaglaðningi fyrir fátæk og munaðarlaus börn í Úkraínu.  Síðustu ár hafa fjölmargir lagt verkefninu lið og meir en 33 þúsund skókassar með jólagjöfum hafa verið sendir með gámi til Úkraínu.

Lokaskiladagur Jól í skókassa 2013 í Reykjavík er laugardagurinn 9.nóvember.  Þann dag verður opið hús á Holtavegi 28, þar sem hægt verður að sjá myndir frá afhendingu skókassa í Úkraínu og skila inn skókössum.  Nú þegar hafa borist fjömargir kassar á skrifstofu KFUM og KFUK við Holtaveg þar sem tekið er á móti kössum alla virka daga.  

Að jafnaði er lokaskiladagur verkefnisins á landsbyggðinni um viku fyrr en í Reykjavík.  Þar sem ekki eru tengiliðir og formleg móttaka má koma kössum á afgreiðslu Eimskipa Flytjanda, sem eru dyggir stuðningsaðilar verkefnisins.
Allar upplýsingar um Jól í skókassa má sjá á heimasíðu verkefnisins:  www.skokassar.net eða á Facebook „jól í skókassa“.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024