HSS
HSS

Aðsent

Velferð og umhverfi Sandgerðinga
Föstudagur 19. maí 2006 kl. 13:50

Velferð og umhverfi Sandgerðinga

Þegar líða fer að kosningum er hollt að líta yfir farinn veg og skoða verk bæjarstjórnar. Ég hef verið að skoða undanfarin 4 ár í Sandgerði. Hin mikla uppbygging og þróun hér í bænum, segir mér að hér hefur verið haldið rétt á spilunum.
Ekki þarf að taka það sérstaklega fram að uppbygging bæjarfélagsins þar sem K-listinn hefur 3 af 4 í meirihluta bæjarstjórnar hefur verið mjög mikil, og Sandgerðingum til sóma. Ég vil gjarnan að uppbygging í Sandgerði haldi áfram á næsta kjörtímabili með sama krafti og verið hefur. Á kjörtímabilinu hefur bæjarbúum í Sandgerði fjölgað mikið og á eftir að fjölga meira. Einnig tel ég það mikið gleðiefni, hversu margir ungir Sandgerðingar eru að hefja búskap í bæjarfélaginu, en það var markmið K-listans fyrir yfirstandandi kjötímabil.
Þetta tel ég vera að miklum hluta fyrir tilstuðlan vandaðrar og markvissrar auglýsingarherferðar, „Lykil að lífsgæðum“ sem Sandgerðisbær fór í á kjörtímabilinu. Stefna K-listans fyrir komandi kjörtímabil, er að halda áfram á sömu braut, að vinna vel og skynsamlega að málefnum bæjarfélagsins, hér eftir sem hingað til.

Velferð okkar
Aðstaða og aðbúnaður Sandgerðisbæjar varðandi barnafólk er í afar góðum farvegi. Árið 2005 voru yngstu Sandgerðingarnir einungis 12 mánaða gamlir þegar leikskólaganga þeirra hófst. Það verða breytingar á skipulagi leikskólans næsta haust, þar sem deild yngstu borgara okkar verður færð úr samkomuhúsi og elstu börnin okkar fara í húsnæði að Skólastræti 1. Frístundahúsnæði fyrir unga fólkið okkar í grunnskólanum, er komið í fulla vinnslu þar sem Sandgerðisbær hefur samþykkt að ganga til samninga um kaup á húsnæði Púlsins fyrir þá starfsemi. Ákvörðun hefur verið tekin um félagsaðstöðu fyrir 16 ára og eldri, í húsnæði að Tjarnargötu 4. Sandgerðisbær er einnig búinn að gera samning um húsnæði fyrir hljómsveitir og margt fleira í atvinnuhúsnæði Grétars Pálssonar. Aðbúnaður eldri borgara í Sandgerði miðað við sambærilega stærð bæjarfélaga er aðdáunarverður og til eftirbreytni. Við getum horft stolt til Miðhúsa og Vörðunnar, en þar eru íbúðir fyrir borgara 50+ og góð þjónusta við bæjarbúa. K – listinn mun áfram vinna vel að málefnum yngra og eldra fólks í bæjarfélaginu.

Umhverfi okkar
Hvað varðar umhverfið okkar þá getum við borið höfuð hátt því framkvæmdir sem gerðar hafa verið í Sandgerði, gera okkur afar stolt af bænum okkar. Taka skal þó fram að umhverfismál eru okkur á K-listanum afar hjartfólgin og stefnt er að áframhaldandi átaki hvað þennan málaflokk varðar. Staða bæjarins er sérlega glæsileg sé litið til barnafjölskyldna, unga fólksins, eldri borgara, umhverfis, fólksfjölgunar og fjármálastöðu því fjárhagstaða bæjarins er mjög traust.
Ég óska eftir stuðningi bæjarbúa við K - listann í komandi kosningum, til að tryggja áframhaldandi framþróun og að stuðlað verði enn frekar að velferð í samfélaginu okkar.
Við höldum áfram að vinna vel í Sandgerðisbæ fyrir okkur bæjarbúana.
Því bið ég ykkur um að setja X við K á kjördag, þann 27. maí 2006

Sitjum ekki við orðin tóm, gerum eitthvað í málunum!

Baráttu- og framfarakveðja.
Ari Gylfason
Skipar 6. sæti K – listans
Bílakjarninn
Bílakjarninn