Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Aðsent

Vel sóttur fyrirlestur um börn með sérþarfir í íþróttum
Miðvikudagur 25. apríl 2012 kl. 15:12

Vel sóttur fyrirlestur um börn með sérþarfir í íþróttum



Fyrirlesturinn Börn með sérþarfir sem fram fór í gær var afar vel heppnaður. Fyrirlesari var Gylfi Jón Gylfason sálfræðingur. Þrjátíu og fimm einstaklingar mættu og voru flestir þjálfarar auk nokkrar stjórnarmanna. Þátttakendur voru að sögn mjög ánægðir með fyrirlesturinn.

Það var aðalstjórn Keflavíkur í samstarfi við framkvæmdastjóra UMFN sem stóð fyrir þessum fyrirlestri. Það er von okkar að með þessum fyrirlestri hafi þjálfara okkar fengið dýrmæta þekkingu um hvernig best sé að umgangast börn með sérþarfir. Við viljum jú að allir eigi þess kost að stunda íþróttir.

Vill ég fyrir hönd okkar þakka þeim sem komu og einnig Gylfa Jóni fyrir hans þátttöku.

Einar Haraldsson formaður Keflavíkur.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024