Bygg
Bygg

Aðsent

Vel sóttir styrktartónleikar
Fimmtudagur 26. ágúst 2004 kl. 11:50

Vel sóttir styrktartónleikar

Rythma og Blúsfélag Reykjanesbæjar stóð fyrir tónleikum til  styrktar Þroskahjálp á Suður-nesjum þann 19. ágúst síðast-liðinn í Listasafni Reykjanesbæjar.
Tónleikarnir tókust í alla staði vel og var mæting bæjarbúa til fyrirmyndar, en talið er að yfir 100 manns hafi komið og vill félagið þakka þann góða stuðning sem málefninu var sýnt. Gaman er að geta þess að aukning varð á félagatali hjá okkur og erum við nú orðin yfir 30 talsins.
Upphæðin sem safnaðist mun verða formlega afhent á ljósanótt þann 4.  september næstkomandi. Styrktarreikningurinn er opinn fram að þeim tíma vilji bæjarbúar styrkja Þroskahjálp enn frekar. Reikningurinn er Trompreikningur í Sparisjóðnum í Keflavík og er númerið 409297 og kennitalan er 640604-2710.
Á tónleikunum komu fram Rúnar Júlíusson, Halldór Bragason, R&B sveitin VAX og Breiðbandið. Veitingahúsin Kaffi Duus, Kaffitár og Matarlyst buðu upp á veitingar og Reykjanesbær lagði okkur til húsnæði, svið og hljóðkerfi.
Félagið þakkar listamönnunum, Veitingafyrirtækjunum og Reykjanesbæ fyrir þeirra frábæra framlag.
Að lokum viljum við í félaginu minna fólk á að kynna sér frábæra dagskrá okkar í tengslum við Ljósanótt, en forsala miða er hafin í versluninni Hljómval.
Kærar þakkir,
Margrét Eysteinsdóttir,
Form. R&B í RNB
Bílakjarninn
Bílakjarninn