Bygg
Bygg

Aðsent

Veistu hver er bekkjartengill í bekk barnsins þíns?
Föstudagur 7. september 2007 kl. 16:18

Veistu hver er bekkjartengill í bekk barnsins þíns?

VILTU GEFA KOST Á ÞÉR?

Bekkjartenglar eða bekkjarfulltrúar eru yfirleitt kosnir eða skipaðir á másefniskynningum í grunnskólum og þá yfirleitt á haustin. Einstaka skólar hafa tekið upp þá nýbreytni að kjósa bekkjartengla að vori til þess að bekkjarstarfið geti hafist strax við upphaf skólaársins. Um hlutverk bekkjartengla segir í handbók Heimilis og skóla um foreldrasamvinnu að hlutverk þeirra sé að stuðla að auknu samstarfi foreldra, kennara og nemenda innan hvers bekkjar.  Þeir eru kosnir eða tilnefndir í samráði við fráfarandi bekkjarfultrúa og yfirleitt kosnir til tveggja ára í senn.

Bekkjartenglar starfa á vegum foreldrafélagsins og oft hafa verið samþykktar sérstakar starfsreglur fyrir þá í viðkomandi foreldrafélagi. Mörg foreldrafélög færa bekkjarfulltrúum sínum ýmis gögn til að styðjast við t.d.  “Foreldrabankann” sem er upplýsingamappa með leiðbeiningum fyrir bekkjarfulltrúa frá Heimili og skóla.  Í sumum tilfellum er bakland bekkjarfulltrúans svokallað bekkjarráð  sem skipað er þremur foreldrum sem taka að sér að halda utan um félagslíf bekkjarins og að virkja aðra foreldra til þátttöku. Í öðrum tilfellum er foreldrahópnum í bekknum skipt í þrjá hópa sem hver um sig sér um bekkjarstarfið eina önn í senn. Að stuðla að auknu samstarfi og efla foreldrasamvinnu er stór þáttur í starfi bekkjartengla en mikilvægt er að sem flestir foreldrar í bekknum taki þátt í þessu starfi og fundinn sé vettvangur fyrir foreldra að hittast.

Oft er það fyrsta hlutverk bekkjartengla að kalla foreldra í bekknum saman til að ræða um hvað þeir leggja til að gert verði um veturinn og á þeim vettvangi er t.d. bekkjarandinn, tengslanet foreldra  og upplýsingaflæðið milli foreldra og til og frá skóla til umræðu. Boðun á slíka fundi er lykilatriði og gott að fá umsjónarkennara í lið með sér t.d. að setja tilkynningar um fundi á vikuáætlanir eða með tölvupósti á Mentor. Einnig er gott að kynna bekkjartengla  eftir að þeir eru kosnir svo allir foreldrar viti hverjir eru bekkjartenglar í bekk barna sinna. Sum bekkjarráð skipta méð sér verkum þannig að þeir búa til þrjú eða fjögur tengslanet eða símakeðjur þannig að boðleiðin fer auk fyrrgreindara aðferða fram í gegnum síma eða maður á mann.

Mikilvægt er að tengsl bekkjartengla við stjórn foreldrafélags og foreldraráðs séu skilgreind og einnig að þessir aðilar hittist regulega og ræði um skólastarfið.  Samkvæmt grunnskólalögum skal starfa foreldraráð við hvern skóla. Skólastjóri starfar með foreldraráði og veitir því upplýsingar um starfið í skólanum.  Í gegnum foreldraráð geta foreldrar komið því  áleiðis til skólastjórnar sem þeir telja að betur megi fara. Nauðsynlegt er að góðar upplýsingar um foreldraráð og foreldrafélög séu á heimasíðum skólanna sem og netföng formanna og símanúmer. 
Á heimasíðu HEIMILI OG SKÓLA- landssamtaka foreldra  www.heimiliogskoli.is er að finna ýmsar upplýsingar um foreldrasamstarf. Einnig er veitt ráðgjöf á skrifstofu samtakanna.

Helga Margrét Guðmundsdóttir
verkefnastjóri  hjá Heimili og skóla – landssamtökum foreldra        
Bílakjarninn
Bílakjarninn