Veistu hvað barnið þitt er að gera?
Lundur forvarnarfélag gaf út bækling nýverið er ber heitið VEISTU HVAÐ BARNIÐ ÞITT ER AÐ GERA og bar Íslandspóstur hann í öll hús á Suðurnesjum í byrjun mánaðarins, vona ég að flestir hafi lesið hann og noti hann sér til fræðslu og stuðnings.
Ástæðan fyrir því að ég er að skrifa til ykkar núna eru þau fjölmörgu símtöl sem ég fæ frá ykkur foreldrum um hvað ber að gera þegar okkur grunar að eitthvað er ekki eins og það á að vera. Veit ég það vel að það er erfitt að taka það skref að mæta á staðinn, hvort sem það er hjá okkur eða einhverjum öðrum. Það sem mér finnst verst er að síðan heyri ég ekkert meira fyrr en einhverjum mánuðum seinna, ef ég heyri þá eitthvað. Er þá staðan oft orðin slæm. Hver dagur og hver vika getur skipt sköpum í þessum málum og hvort sátt og samstaða verði innan fjölskyldunnar eða ekki. En að taka þá ákvörðun að bíða og sjá til getur valdið kvíða, svefntruflunum og skapað slæmt andrúmsloft innan fjölskyldunnar þannig að samskiptin verða óeðlileg sem þá oft leiða til annara vandamála.
Lundur vill þakka þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem studdu okkur við gerð bæklingsins.
Hér má skoða bæklinginn.
Erlingur Jónsson
www.lundur.net