Aðsent

Veikar vísbendingar í rétta átt
Mánudagur 30. mars 2015 kl. 14:00

Veikar vísbendingar í rétta átt

Kjartan Már Kjartansson skrifar.

Þessa dagana vinnur starfsfólk fjármálasviðs Reykjanesbæjar hörðum höndum að gerð ársreiknings fyrir árið 2014. Endurskoðendur Deloitte fylgjast grannt með og passa að allt sé samkvæmt lögum og reglum.

Í raun er um nokkra ársreikninga að ræða því margar uppgjörseiningar eru reknar sem sjálfstæðar einingar. Á meðal þeirra eru B-hluta stofnanir eins og Reykjaneshöfn, Fasteignir Reykjanesbæjar og Fráveita Reykjanesbæjar auk hlutafélaga sem eru í meirihlutaeigu Reykjanesbæjar. Má þar nefna HS Veitur, Íslending ehf. sem á samnefnt víkingaskip, Útlending ehf., sem á fasteignina Víkingaheima sem hýsir skipið og fasteignafélag sem á og rekur Tjarnagötu 12 og fleiri byggingar. Þótt þessar einingar séu allar mikilvægar skiptir mestu máli hvernig uppgjör A-hluta bæjarsjóðs mun líta út en innan hans er grunnþjónusta sveitarfélagsins s.s. rekstur skólakerfisins, félagsþjónustu, menningarstofnana og íþrótta- og tómstundamála.

Stigið á bremsurnar

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Á síðari hluta árs 2014 stefndi í talsverða framúrkeyrslu á árinu með tilheyrandi hallarekstri. Gerð var svokölluð útkomuspá sl. haust en hún byggði á upplýsingum úr rekstrinum þá mánuði sem liðnir voru og þeim skuldbindingum og áætlunum sem búið var að gera fyrir þá mánuði sem eftir voru. Útkomuspáin sýndi að reksturinn stefndi í að verða hundrðum milljónum króna verri en upphafleg fjárhagsáætlun ársins 2014 gerði ráð fyrir. Því ákváðu bæjaryfirvöld að stíga þétt á bremsurnar og ráðast í aðhaldsaðgerðir í samstarfi við stjórnendur og starfsmenn Reykjanesbæjar með það að markmiði að draga úr fyrirsjáanlegum rekstrarhalla. Tilfinning okkar er sú að tekist hafi að koma böndum á rekstrarkostnaðinn en endanleg niðurstaða verður samt ekki ljós fyrr en ársreikningurinn verður lagður fram um miðjan apríl.

Niðurstöður kjarasamninga breyta miklu

Það sem af er árinu 2015 bendir allt í sömu átt þ.e. að tekist hafi að stöðva hallarekstur Reykjanesbæjar. Þó er alltof snemmt að draga einhverjar endanlegar ályktanir enda margt óljóst í náinni framtíð. Til dæmis munu niðurstöður kjarasamninga breyta miklu því nær helmingur rekstrarkostnaðar A-hluta Reykjanesbæjar, eða um 5 milljarðar, eru laun og launatengdur kostnaður. Hvert prósent, sem sá kostnaður hækkar um þýðir því 50 milljóna útgjaldahækkun sveitarfélagsins. Við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2015 var gert ráð fyrir 3,5% launahækkunum á árinu en ef þær hækkanir verða meiri mun það hafa mikil áhrif.

Samhliða því sem reynt er að ná tökum á rekstrarkostnaði Reykjanesbæjar er unnið hörðum höndum að því að leita leiða til að auka tekjur. Vonandi náum við einnig árangri á því sviði.

Kær kveðja

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri

(Pistill af vefsíðu Reykjanesbæjar)