Vegtollar eru kjaraskerðing fyrir íbúa svæðisins
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ mótmælir harðlega öllum hugmyndum ríkisstjórnarinnar um vegtolla á Reykjanesbraut. Slík gjaldtaka mun ekki aðeins vera kjaraskerðing fyrir þá einstaklinga sem sækja atvinnu eða nám á höfuðborgarsvæðinu, sem og þeirra sem þurfa að sækja þangað þjónustu, heldur einnig skerða samkeppnistöðu fyrirtækja á Suðurnesjum.
Sú skýring núverandi samgönguráðherra um að nauðsynlegt sé að setja vegtolla ef klára á tvöföldun á næstu árum stenst enga skoðun. Nóg er að nefna að nú þegar eru þeir skattar sem rukkaðir eru sérstaklega til að standa undir vegakerfi landsins í gegnum bensíngjaldið ekki full nýttir. Eins er vert að minna ráðherrann á að aukin skattlagning til að standa undir framkvæmdum skapar ekki störf, heldur flytur þau á milli atvinnugreina, oftast á kostnað einkaframtaksins.
Fulltrúaráðið kallar eftir öflugri samstöðu meðal allra bæjarfulltrúa og alþingismanna svæðisins um þetta brýna hagsmunamál Suðurnesjamanna.
Samþykkt á stjórnarfundi Fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, 13. janúar 2011.