Sjómannakveðjur 3
Sjómannakveðjur 3

Aðsent

Vegna fréttar um hraðakstur á Austurvegi
Þriðjudagur 15. febrúar 2011 kl. 15:24

Vegna fréttar um hraðakstur á Austurvegi

Vegna fréttar um hraðakstur á Austurvegi á Stöð 2 í gær þar sem því miður var ekki leitað eftir upplýsingum frá Grindavíkurbæ, er rétt að taka fram að bæjarstjóri og yfirmaður tæknideildar Grindavíkurbæjar hittu þann 18. janúar sl. Ingibjörgu Björgvinsdóttur, íbúa við Austurveg.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Á þeim upplýsingafundi var m.a. farið yfir þær aðgerðir sem Grindavíkurbær og Vegagerðin eru að undirbúa til þess að ná niður hraðakstri við Austurveg, m.a. með hækkun hraðahindrana, bráðabirgðahraðahindrunum og svo framkvæmdum við væntanlegt hraðahlið en Austurvegur er innkomuleið í bæinn og því á ábyrgð Vegagerðarinnar. Þarna lá fyrir skýr verkáætlun og því koma fullyrðingar um annað nokkuð á óvart.


Grindavíkurbær hefur samþykkt Umferðaröryggisáætlun en markmið hennar er að fækka slysum og gera alla vinnu á sviði umferðaröryggis markvissari. Eftir henni er unnið núna, m.a. að fyrrgreindum verkefnum og var m.a. boðað til íbúafundar í því vinnuferli. Í Umferðaröryggisáætluninni kemur m.a. fram svar Vegagerðarinnar um gerð þéttbýlishliðs við tjaldsvæðið á Austurvegi til þess að setja skýr mörk þar sem ekið er inn í þéttbýli.


Með kveðju

Ingvar Þ. Gunnlaugsson
yfirmaður Tæknideildar Grindavíkurbæjar