Varstu að klessukeyra Corolluna þína?
Ert þú eigandi að blárri Toyota Corolla bifreið og varst að taka út pening í hraðbanka Sparisjóðsins í Njarðvík um kl. 19 í gærkvöldi, mánudagskvöld? Þegar þú bakkaðir úr bílastæðinu við Sparisjóðinn þá virtist þér liggja mikið á, því þú keyrðir á aðra bifreið en flúðir af vettvangi án þess svo mikið sem athuga með tjón.
Þér virtist liggja mikið á að komast í burtu af vettvangi því þú keyrðir langt yfir leyfilegum hámarkshraða norður Reykjanesveginn og síðan Njarðarbrautina til Keflavíkur.
Því miður náði ég ekki númerinu á bílnum þínum en heyrði höggið þegar þú keyrðir á bílinn og sá þig bruna á brott. Þú skildir eftir rispur á bílnum hjá mér og einnig bláan lit af bílnum þínum.
Ég á svo sem ekki von á að þú gefir þig fram en ég bið þá sem verða vara við bláa Toyota Corolla, svipaða þeirri sem er á meðfylgjandi mynd og nær örugglega með rispur á afturhorni að hafa samband við Víkurfréttir í síma 421 0002.
Viljir þú, eigandi bláu Toyota Corolla bifreiðarinnar, gefa þig fram þá er það þér svo gott sem að kostnaðarlausu, þar sem tryggingar þínar greiða fyrir það tjón sem þú ollir.
Vinsamlega hafðu samband í síma 421 0002.