Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

  • Vandi menntakerfisins
  • Vandi menntakerfisins
Föstudagur 21. mars 2014 kl. 09:52

Vandi menntakerfisins

– Jórunn Tómasdóttir, framhaldsskólakennari í FS, skrifar.

Framhaldsskólakennarar eru í verkfalli. Krafa þeirra um launaleiðréttingu til jafns við aðrar sambærilegar háskólamenntaðar stéttir er sanngjörn. En launamál kennara eru bara einn angi af langvarandi og víðtækum vanda menntakerfisins í heild. Þann heildstæða vanda þyrfti að greina og finna ásættanlega lausn á. Kennarar hafa í áranna rás verið ötulir við að benda á vandann og stinga upp á kerfisbreytingum en um það virðist ríkja mikil tregða.

Samkvæmt lögum erum við með grunnskóla án aðgreiningar og framhaldsskóla fyrir alla. Þetta er falleg hugmyndafræði og hæpið að vera henni mótfallinn. Hins vegar verður að velta því fyrir sér hvort þessi hugmyndafræði virki sem skyldi í framkvæmd. Hefur okkur farnast vel? Ekki miðað við PISA kannanir og ekki miðað við brottfall í framhaldsskólum. Kennarar kvarta því þeir virðast ekki í stakk búnir til að takast á við alla nemendaflóruna.

Uppskrift að fyrirmyndarskóla verður seint til. Skólastarf er þess eðlis að það á að vera í stöðugri þróun. Vandi menntakerfisins felst að miklu leyti í því að okkur hefur mistekist að raungera hugmyndafræðina. Það þarf að skilgreina betur hlutverk og markmið skólastarfsins og hlutverk kennarans. Á skólinn að vera fræðslustofnun, uppeldisstofnun, félagslegt úrræði eða kannski allt þetta í senn? Hvert er þá hlutverk kennarans? Á hann að vera uppfræðari, uppalandi, sérfræðingur í alls konar röskunum, námslegum jafnt sem persónulegum eða allt þetta í senn? Hvernig skóla viljum við hafa og hvernig ætlum við að ná því markmiði? Þetta eru lykilspurningar sem verður að svara áður en lengra er haldið.

Brottfall í framhaldsskólum er stór og dýr meinsemd. Ástæður þess eru margvíslegar. Ein er sú að nemendur flæða viðstöðulítið gegnum grunnskólann og inn í framhaldsskólann án þess að þurfa að ná fyrirframsettum, ákveðnum námsmarkmiðum. Margir nemendur koma því illa undirbúnir í framhaldsskólann og ráða hvorki við námsefnið né námskröfurnar. Þeir flosna upp frá námi. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að koma ætti á áfangakerfi í tveim síðustu bekkjum grunnskólans með sömu námskröfum og gilda í framhaldsskólanum og tengja þannig saman  skólastigin tvö, gera skilin milli þeirra fljótandi og skapa samfellu í náminu.

 Það þarf að auka veg starfsmenntunar, verknáms og listnáms jafnhliða bóknáminu sem er alltof fyrirferðamikið í framhaldsskólanum og hentar alls ekki öllum. Styttri námsbrautir eiga líka fullan rétt á sér. Oft er talað um að verknámið sé svo dýrt. En hefur verið reiknað út hve dýrt það er að halda nemendum inni á bóknámsbraut með fall í áföngum önn eftir önn eða hefur verið reiknað út hve dýrt  máttlítið stúdentspróf er sem aðgöngumiði að háskólanámi?
 
Að mínu mati liggur stór vandi menntakerfisins m.a. í því að skólanum hefur verið ætlað of margþætt hlutverk. Það þyrfti að skilgreina hlutverk hans og  kennarans betur. Skólinn þyrfti að vera óragari við meiri niðurhólfun þannig að allir fengju nám við hæfi og getu samkvæmt gildandi hugmyndafræði. Það þyrfti að láta af pólitískri rétthugsun og misskildu jafnréttissjónarmiði sem hefur verið mikill dragbítur á allt skólastarf alltof lengi.  

Menntakerfið kostar skattborgara drjúgan skilding og varla er hægt að kenna launum kennara um þann óhóflega kostnað. Mér hefur lengi fundist að nauðsynlegt væri að umbylta öllu kerfinu innan frá, stokka upp, endurskoða markmiðin, hlutverkið, inntakið og leiðirnar. Það er auðvitað gott til þess að vita að nemendum líður vel í skólanum en verra að skólinn hafi ekki gert þá læsa þeim til gagns.

Það er engin lausn fólgin í því að staga í götin hvað þá skera heilt kennsluár ofan af framhaldsskólanum án þess að taka allt menntakerfið til rækilegrar endurskoðunar. Það gerist ekki í einu vetfangi.

Jórunn Tómasdóttir
Framhaldsskólakennari í FS

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024