Vanáætlaðar tekjur og ofáætluð gjöld
Bókun minnihluta bæjarstjórnar vegna ársreiknings Reykjanesbæjar fyrir árið 2021
Ársreikningur Reykjanesbæjar er nú lagður fram til samþykktar og má með sanni segja að margt komi á óvart í niðurstöðutölunum. Hagnaður af rekstri bæjarsjóðs telst vera rúmir 2 milljarðar en þegar tekjufærsla vegna yfirfærslu eigna Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf. að upphæð 3,5 milljarðar er dregin frá þá er niðurstaðan tap upp á 1.355 milljónir sem er mun betra en áætlað var því búist var við 3 milljarða króna tapi. Skatttekjur voru verulega vanáætlaðar sem eru jákvæðar fréttir sem og að framlög úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga jukust umfram væntingar.
Starfsfólki heldur áfram að fjölga hlutfallslega umfram fjölgun bæjarbúa. Stöðugildum fjölgar um 55 milli ára eða um 5,8% á meðan íbúum fjölgar um 3,6% og launakostnaður eykst um rúmlega 12% á milli ára. Annar rekstrarkostnaður eykst síðan um 14% á milli ára skv. endurskoðendaskýrslu. Heildarskuldir og skuldbindingar í samanteknum ársreikningi námu um 45 milljörðum króna og hafa aukist um 5 milljarða síðustu 8 árin þrátt fyrir að tekjur hafi aukist um 80,5%.
Í annað skiptið á þessu kjörtímabili eru bókhaldslegar tilfærslur eða sala á eignum Reykjanesbæjar að rétta við rekstrarreikninginn. Árið 2019 skiluðu svokölluð Magma bréf álitlegum hagnaði sem myndaði lang stærsta hlutann af hagnaði þess árs og gerði bænum kleift að fjármagna byggingu Stapaskóla án lána. Nú eru það eignir sem leyndust í Eignarhaldsfélaginu Fasteign ehf. sem hjálpa til við uppgjörið. Eignir sem fullyrt er að hafi verið seldar af fyrri meirihluta. Í endurskoðunarskýrslu þeirri sem lögð er fram með ársreikningi kemur hið rétta fram, því að þar segja endurskoðendur: „Sömu eignir voru fyrir á efnahagsreikningi bæjarsjóðs sem leigueignir og var bókfært verð þeirra umtalsvert lægra“. Bókhaldstilfærslur mynda einnig verulegar tekjur í ársreikningi Reykjaneshafnar en þar er tekjufærð niðurfelld skuld við bæjarsjóð að upphæð um 3 milljarðar króna.
Í fjárhagsáætlunargerð síðustu ára hefur meirihlutinn stært sig af því að vanáætla tekjur og ofáætla gjöld til að hafa borð fyrir báru. En fyrr má nú aldeilis rota en dauðrota þegar tekjur eru vanáætlaðar um nærri tvo og hálfan milljarð.
Við fögnum jákvæðri niðurstöðu á rekstri bæjarsjóðs þó hann sé bundinn þessum annmörkum sem hér er getið en höfum áhyggjur af þeirri fjárhagsáætlun sem nú er unnið eftir. Nú virðist meirihlutinn hafa vanáætlað gjöldin hressilega því í hverri viku er bæjarráð að vísa erindum upp á tugi milljóna til viðauka í fjárhagsáætlun.
Starfsfólki færum við þakkir fyrir þrotlausa vinnu og gott samstarf við gerð ársreiknings og fjárhagsáætlunar.
Margrét Sanders Sjálfstæðisflokki
Baldur Guðmundsson Sjálfstæðisflokki
Anna Sigríður Jóhannesdóttir Sjálfstæðisflokki
Gunnar Þórarinsson Frjálst afl
Margrét Þórarinsdóttir Miðflokki