Unnur Brá vill 5. sæti hjá Sjálfstæðismönnum

Unnur Brá leiddi lista Sjálfstæðismanna í Rangárþingi eystra í sveitarstjórnarkosningum 2006 og var kjörin í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins á síðasta landsfundi. Unnur Brá er varaformaður Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, varaformaður fulltrúararáðs Sjálfstæðisflokksins í Rangárvallasýslu og situr í stjórn Landsambands sjálfstæðiskvenna. Auk þessa hefur Unnur Brá gegnt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Unnur Brá er pistlahöfundur á Deiglunni, var oddviti Vöku í Stúdentaráði Háskóla Íslands 1999-2000 og sat jafnframt í stjórn Vöku.
Unnur Brá starfaði áður sem lögfræðingur hjá Fasteignamati ríkisins á Selfossi, var fulltrúi sýslumannsembættanna á Selfossi og Ísafirði og um tíma settur sýslumaður á Ísafirði.
Unnur Brá býr á Hvolsvelli og er í sambúð með Kjartani Þorkelssyni, sýslumanni á Hvolsvelli og eiga þau einn son.