Ungir ökumenn kynnast bláköldum raunveruleikanum á Forvarnardegi í Reykjanesbæ
Dagskráin hefst kl 09:00 með sviðsettu slysi á plani 88-Hússins og verður framkvæmt útkall á slökkvi- og sjúkralið ásamt lögreglu. Fulltrúi lögreglu ræðir við nemendur um forvarnir og veitir ýmsar upplýsingar fyrir verðandi ökumenn s.s. um ölvunarakstur, sektir og fleira.
Nemendum gefst tækifæri á að prófa veltubíllinn, árekstrarsleðann og ölvunargleraugu, svo eitthvað sé nefnt. Nemendur fá að kynnast tækjunum af eigin raun sem Slökkvilið BS notar til að ná slösuðum út úr klesstum bifreiðum eftir árekstur.
Markmiðið er að virkja þátttöku nemenda og þykir þessi aðferð sem byggir á beinni þátttöku, vel til þess fallin að vekja athygli og fækka slysum og auka þar með öryggi allra í umferðinni.