Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Umhverfismælingar í Helguvík - Mikilvægi óháðs mælingaaðila
Föstudagur 7. apríl 2017 kl. 06:00

Umhverfismælingar í Helguvík - Mikilvægi óháðs mælingaaðila

- Aðsend grein frá yfirmanni rannsóknarstofu Orkurannsókna

Umræða um niðurstöður mælinga á mengandi efnum frá verksmiðju United Silicon í Helguvík hafa verið áberandi í fjölmiðlum undanfarna viku og þá einkum um hversu áreiðanlegar slíkar mælingar séu. Orkurannsóknir ehf. sem ábyrgðaraðili þessara mælinga hefur dregist inn í þá umræðu og fengið gagnrýni fyrir að benda á hugsanlega skekkju í niðurstöðum greininga á þungmálmum.

Umfang
Orkurannsóknir ehf. hafa annast umhverfismælingar í Helguvík samkvæmt samkomulagi við United Silicon. Orkurannsóknir eru óháður rannsóknaraðili sem starfar innan Keilis. Fyrirtækið var stofnað árið 2010 og er samþykkt af Umhverfisstofnun en kostnaður við þetta tiltekna verkefni er greiddur af United Silicon.
Haustið 2015 voru tekin bakgrunnssýni af mosa, öðrum gróðri, jarðvegi og ferskvatni og í byrjun árs 2016 voru settar upp þrjár mælistöðvar í nágrenni verksmiðjunnar þar sem fram fara símælingar á lofttegundum og ryki. Á tveimur mælistöðvunum er einnig safnað ryk- og úrkomusýnum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Fullkominn mælibúnaður
Mælibúnaður er vottaður samkvæmt alþjóðlegum stöðlum. Brennisteinsdíoxíð, köfnunarefnisoxíð og örfínt ryk eru mæld með sjálfvirkum mælibúnaði á tíu mínútna fresti og niðurstöður birtar á vefsíðunni www.andvari.is. Ryksöfnun fer fram með því að draga loft í gegnum síu og er safnað samfellt í sex daga í einu allt árið.
Allir verkferlar eru skilgreindir samkvæmt gæðakerfi Orkurannsókna og rekjanleiki tryggður með skráningum á öllum stigum. Sýni eru send til rannsóknarstofu ALS í Svíþjóð sem fylgir vottuðum mæliaðferðum samkvæmt ISO 9001.

Mælingar þungmálma
Mælingar á þungmálmum í ryki frá Helguvík hófust í mars 2016 og hafa sýni hafa verið greind mánaðarlega. Fyrsti hluti var frá mars til september 2016, annar frá október til desember 2016 og sá þriðji frá janúar til mars 2017. Á línuritinu er sýnd niðurstaða þessara mælinga.

Í öðrum áfanga mældust gildin fyrir flesta málma um fimmfalt hærri heldur en í fyrsta og þriðja áfanga. Ljóst var að niðurstöður annars áfanga stóðust ekki skoðun um áreiðanleika. Verksmiðjan var ekki gangsett fyrr en um miðjan nóvember 2016 auk þess sem suðlægar áttir voru ríkjandi allt þetta tímabil. Samanburður á styrk þungmálma í ryki frá mælistöðvum annars vegar og ryki úr útblæstri kísilverksmiðjunnar sýndu allt að 27-falt hærri styrk á arseni í ryki. Undir venjulegum kringumstæðum hefðu þessi gildi einfaldlega verið tekin til hliðar þar til frekari mælingar lágu fyrir sem staðfestu eða útilokuðu þau. Aðstæður kröfðust hins vegar skjótra viðbragða og því var tekin ákvörðun um að tilkynna Umhverfisstofnun að um hugsanlega skekkju væri að ræða.

Hvernig er hægt að fyrirbyggja rangar niðurstöður?
Það er ekkert til sem heitir „rétt“ niðurstaða í mælingum. Með endurteknum mælingum er reynt að komast sem næst því. Við mat á niðurstöðum eru núllpunktsskekkja, kerfisbundin mæliskekkja, mælióvissa og staðalfrávik lykilatriði.
Orkurannsóknir fylgja viðurkenndum ferlum við mælitækni. Þegar hlutir fara úrskeiðis skipta viðbrögðin mestu máli og því verður gripið til eftirfarandi aðgerða:
ALS hefur að beiðni Orkurannsókna hafið rannsókn vegna umræddra mælinga
Samanburðarsýni fyrir ryk verða send til annarra rannsóknarstofa
Verkferlar Orkurannsókna verða yfirfarnir og skráningar auknar

Samantekt
Í vinnslu er ársskýrsla fyrir umhverfismælingar í Helguvík fyrir árið 2016. Hún mun lýsa öllum þáttum mælinga sem farið hafa fram, þar á meðal mælingum á jarðvegs-, gróður- og vatnssýnum sem tekin voru haustið 2015. Gerð verður grein fyrir símælingum á lofttegundum og ryki sem hófust í janúar 2016 og samanburður á gildum fyrir og eftir gangsetningu verksmiðjunnar í nóvember 2016.
Þessi skýrsla mun varpa skýrara ljósi á mælanleg áhrif kísilverksmiðju United Silicon á nánasta umhverfi. Umhverfisstofnun hefur falið Orkurannsóknum ehf. að annast skýrslugerðina og sýnir það það traust sem fyrirtækið nýtur.

Egill Þórir Einarsson
Yfirmaður rannsóknarstofu Orkurannsókna