Aðsent

Umhverfisdagur Keflavíkur 7. maí
Frá umhverfisdeginum 2018.
Sunnudagur 5. maí 2019 kl. 10:28

Umhverfisdagur Keflavíkur 7. maí

Umhverfisdagur Íþrótta- og ungmennafélags Keflavíkur verður mánudaginn 6. maí. Stjórnarmenn deilda, iðkendur og aðrir velunnarar félagsins koma saman og taka til í sínu nærumhverfi.

„Það er okkar markmið að vel sé gengið um keppnissvæði og nærumhverfi félagsins, þau séu snyrtileg og okkur til sóma. Viljum við því sýna gott fordæmi með því að efna til umhverfisdags innan félagsins þar sem stjórnarmönnum og öðrum félagsmönnum gefst kostur á að koma og leggja sitt af mörkum. Viljum einnig beina þeim tilmælum til okkar stuðningsmanna og annarra velunnara sem koma og styðja við bakið á iðkendum um ganga ætíð vel um íþróttasvæðin „Hreint land fagurt land“, sagði Einar Haraldsson, formaður Keflavíkur.

Public deli
Public deli

Dagskráin: 17:30-19:00.

Mæting í félagsheimilinu okkar Sunnubraut 34 kl. 17:30.

Deildir taka til í sínu umhverfi:

Aðalstjórnin tekur til í kringum Hringbraut 108

Knattspyrnudeild tekur til á Hringbrautarsvæðinu kringum knattspyrnuvöllinn

Körfuknattleiksdeild tekur til í kringum íþróttahúsið við Sunnubraut

Fimleikadeild tekur til í kringum Íþróttaakademíuna

Sunddeild tekur til í kringum Sundmiðstöðina

Badminton- og blakdeild tekur til í kringum Heiðarskóla

Taekwondodeild tekur til í kringum svæðið sitt að Iðavöllum

Skotdeild tekur til á sínu svæði í Heiði Höfnum

Endað með grillveislu í félagsheimili  um kl. 18:30 þar sem boðið er upp á hamborgara og gos.