Umferðarráð vekur athygli á öryggi grunnskólabarna
Á fundi Umferðarráðs 10. september 2009 var eftirfarandi ályktun samþykkt:
„Starfsemi grunnskóla er nú komin í fullan gang með tilheyrandi umferð. Sjaldan hafa fleiri börn hafið grunnskólanám hér á landi og því er mikil ástæða til að beina athygli að öryggi þeirra og umhverfi.
Foreldrar og forráðamenn þurfa að undirbúa börnin, leiðbeina þeim og velja öruggustu leiðina í skólann. Ökumenn þurfa að vera sérlega vel á verði og minnt er á að víðast hvar er hámarkshraði við grunnskóla 30 km/klst.
Á undanförnum árum hafa foreldrar verið hvattir til að láta börn sín fara gangandi í skólann, þar sem víða eru aðstæður til að hleypa börnum út úr bíl takmarkaðar og geta hugsanlega skapað hættu. Umferð bíla foreldra skapar oft á tíðum mestu hættuna við skólana.
Senn líður að því að skyggja taki og þess vega er eðlilegt að minna enn og aftur á mikilvægi endurskinsmerkja til öryggis fyrir gangandi fólk, jafnt börn sem fullorðna.“
Umferðarráð er skipað 22 fulltrúum, sem tilnefndir eru af ýmsum aðilum í þjóðfélaginu, sem láta sig umferð og umferðaröryggi varða. Það var stofnað í janúar 1969, en stofnunin Umferðarráð var sameinuð Skráningarstofunni hf. í Umferðarstofu, 1. október árið 2002. Ráðið starfar enn og heldur fundi nokkrum sinnum á ári og fjallar um það sem er efst á baugi í umferðarmálum á hverjum tíma.