Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Umferðaröryggi: Áskorun og viðvörun vegna hraðaksturs í Sandgerði
Fimmtudagur 3. ágúst 2006 kl. 12:56

Umferðaröryggi: Áskorun og viðvörun vegna hraðaksturs í Sandgerði

Mikil umræða er í gangi um hraðakstur í bæjarfélaginu og er sú skoðun áberandi að bæjaryfirvöld þurfi að bregðast við sem og lögregluyfirvöld á staðnum. Rétt er og satt að betra væri ef lögreglan yrði hér sýnilegri, en hún er efalítið að sinna sínum verkefnum í samræmi við fjármagn og mannafla. Bæjaryfirvöld hafa heldur ekki brugðist sínum skyldum er þetta mál varðar.

Hámarkshraða í bæjarfélaginu var breytt niður í 30 km á síðasta ári og aðeins Standgatan hefur 50 km hámarkshraða. Hér verður að koma til samtakamáttur samfélagsins og hugarfarsbreyting. Hraðanum verður að ná niður og við verðum að leggjast á eitt er það mál varðar. Íbúar verða að líta í eigin barm og sjá til þess að ganga á undan með góðu fordæmi – nú er komið að okkur bæjarbúum að fara að lögum. Hraðahindrun í einni götu leysir ekki vandann. Hindrunin getur haft áhrif á þeim stað þar sem hún er sett en umferðarhraðinn færist aðeins til með afleiðingum sem við viljum ekki horfast í augu við. En ef heldur fram sem horfir þá eigum við eftir að upplifa stórslys í bæjarfélaginu.

Ef hinsvegar íbúar telja nauðsynlegt að fá hraðahindrun til að stöðva lögbrot þá þarf slík umsókn að koma fram frá meirihluta íbúa viðkomandi götu. Æskilegt væri að í slíkri umsókn kæmi fram hvar íbúarnir telji að hún komi að bestu notum og að viðkomandi lóðarhafi sætti sig við slíka hindrun fyrir framan sitt hús. Umsóknin er síðan tekin til meðferðar hjá nefnd á vegum bæjarfélagsins sem fjallar um umferðarmál.

Umræða er til alls fyrst en við verðum að koma tillögum til bæjaryfirvalda með formlegum hætti í nútímasamfélagi. Það er markmið bæjarstjórnar að auka íbúalýðræðið.

Við skulum hinsvegar takast á við hinn raunverulega vanda sem er, að það er brot á lögum að virða ekki hámarkshraða bæjarfélagsins.

Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri.

 

(af vef Sandgerðisbæjar).

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024