Ugla boðar til aðalfundar
Aðalfundur Uglu - ungra jafnaðarmanna á Suðurnesjum verður haldinn á morgun. miðvikudaginn 23. september á skrifstofu Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ að Hafnargötu 35 annari hæð og hefst kl. 20. Á dagskrá fundarins eru stjórnmálaumræður og venjubundin aðalfundarstörf.
Ræðumaður kvöldsins er Róbert Marshall þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.
Framboð til stjórnar Uglu óskast send á [email protected]. Allir Suðurnesjamenn á aldrinum 16-35 ára eru hvattir til að bjóða fram krafta sína. Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum.