Tveir nýir blaðamenn til Víkurfrétta
Tveir nýir blaðamenn hafa verið ráðnir til starfa á Víkurfréttum. Sævar Sævarsson er kominn í fullt starf sem blaðamaður. Hann sér jafnframt um íþróttaskrif fyrir miðla Víkurfrétta. Þá hefur Snorri Birgisson verið ráðinn blaðamaður tímabundið í sérverkefni fyrir Víkurfréttir ehf. Hann mun einnig skrifa fréttir í Víkurfréttir og í Víkurfréttir á Netinu.Fréttastjóri Víkurfrétta er Hilmar Bragi Bárðarson og hann tekur við ábendingum um efni í síma 898 2222 allan sólarhringinn.