Tryggjum öfluga forystu fyrir Suðurnes
Á laugardag greiðum við atkvæði um hverjir munu koma hjólum atvinnulífsins í gang á nýjan leik. Að koma atvinnulífinu í gang er eitt mikilvægasta verkefnið fyrir okkur Suðurnesjamenn og því nauðsynlegt að tryggja gott gengi Sjálfstæðisflokksins í kosningunum.
Sjálfstæðisflokkurinn mun lækka álögur á fyrirtæki og vinna með þeim í að tryggja íbúum svæðisins atvinnu. Stöðugt umhverfi fyrir atvinnulífið er nauðsynlegt og það verður tryggt með atkvæði þínu veitt Sjálfstæðisflokknum.
Samkvæmt nýjustu könnunum þá er Sjálfstæðisflokkurinn með þrjá menn í Suðurkjördæmi og stutt í þann fjórða. Fremstar í flokki eru þingmennirnir Ragnheiður Elín Árnadóttir og Unnur Brá Konráðsdóttir sem hafa beitt sér ötullega fyrir Suðurnesin á kjörtímabilinu. Í þriðja sætinu er Ásmundur Friðriksson, en eins og allir vita sem til hans þekkja, mun hann verða mjög öflugur talsmaður fyrir Suðurnesin og eflingu atvinnulífsins á svæðinu. Fjórði maður listans og þriðji Suðurnesjamaðurinn er Grindvíkingurinn Vilhjálmur Árnason, lögreglumaður og núverandi varaþingmaður. Vilhjálmur er tveggja barna faðir og fulltrúi yngri kynslóðarinnar í hópi frambjóðenda og gífurlega mikilvægt að tryggja honum sæti á þingi.
Suðurnesjamenn, tryggjum okkur öfluga forystu á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn!
Setjið X við D á laugardag
Einar Jón Pálsson,
Suðurnesjamaður